Kannar hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gjörðum ritstjóra Morgunblaðsins 27. september 2005 00:01
Baugur mun kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gjörðum Styrmis Gunnarssonar, Jónínu Benediktsdóttur, Jóns Geralds Sullenberger, Jóns Steinars Gunnlaugssonar og Kjartans Gunnarssonar.Einnig hvort aðrir tengist þessum hópi, leynt eða ljóst, eftir því sem fram kemur í yfirlýsingu sem Baugur Gruop sendi frá sér í kvöld. Í yfirlýsingunni segir ennfremur að félagið muni meta réttarstöðu sína í sambandi við meiðyrði í þess garð og forsvarsmanna þess, og þá einnig í tengslum við skaðabótamál sem félagið hefur hafið undirbúning að. Í yfirlýsingunni segir að með fréttaflutningi sínum í dag varpi Morgunblaðið grímunni. Blaðið sé ekki sá hlutlausi fjölmiðill sem það hafi þóst vera, heldur hafi það verið notað sem vopn í baráttu ritstjórans og annarra áhrifamanna tengdum Sjálfstæðisflokknum gegn Baugi Group og forsvarsmönnum þess. Nú síðast í dag sem varnargagn í þeirri þröngu stöðu sem ritstjórinn sé kominn í eftir að upp um hann komst. Skoða beri allan fréttaflutning Morgunblaðsins um málefni Baugs Group og tengdra aðila undanfarin þrjú til fjögur ár í þessu ljósi. Yfirlýsing Baugs Group hf. í heild "Morgunblaðið fellir grímuna" Á forsíðu Morgunblaðsins í dag, 27. september, er því slegið upp að forsvarsmenn Baugs Group hafi ráðið einkaspæjara til að rannsaka fjárhag og persónulega hagi Jóns Geralds Sullenberger og haft í hótunum um að ganga ætti frá honum viðskiptalega og fjárhagslega í tengslum við málaferli. Á baksíðunni er greint frá því að þessir sömu aðilar hafi greitt Jóni Gerald 120 milljónir króna með samkomulagi um niðurfellingu málaferla. Með þessum málflutningi gerir Morgunblaðið tilraun til að draga athygli frá aðalatriðum málsins sem eru uppljóstranir um launráð og samsæri gegn Baugi Group og fyrirsvarsmönnum þess með þátttöku ritstjóra Morgunblaðsins. Með fréttaflutningi sínum í dag varpar Morgunblaðið grímunni. Blaðið er ekki sá hlutlausi fjölmiðill sem það hefur þóst vera, heldur hefur það verið notað sem vopn í baráttu ritstjórans og annarra áhrifamanna tengdum Sjálfstæðisflokknum gegn Baugi Group og forsvarsmönnum þess. Nú síðast í dag sem varnargagn í þeirri þröngu stöðu sem ritstjórinn er kominn í eftir að upp um hann komst. Skoða ber allan fréttaflutning Morgunblaðsins um málefni Baugs Group og tengdra aðila undanfarin þrjú til fjögur ár í þessu ljósi. Aðalatriði málsins er sú aðför sem sterkar vísbendingar eru um að skipulögð hafi verið á ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins til þess að brjóta Baug Group og fyrirsvarsmenn þess á bak aftur í íslensku atvinnulífi, án þess að skeyta nokkuð um afleiðingar þess fyrir félagið, hluthafa þess og þúsundir starfsmanna. Félagið mun kanna hvort efni sé til opinberrar rannsóknar á gjörðum Styrmis Gunnarssonar, Jónínu Benediktsdóttur, Jóns Geralds Sullenberger, Jóns Steinars Gunnlaugssonar og Kjartans Gunnarssonar. Einnig hvort aðrir tengist þessum hópi, leynt eða ljóst. Þá mun félagið meta réttarstöðu sína í sambandi við meiðyrði í þess garð og forsvarsmanna þess, og þá einnig í tengslum við skaðabótamál sem félagið hefur hafið undirbúning að. Vegna framsetningar Morgunblaðsins í morgun er Baugi Group nauðugur einn sá kostur að taka fram eftirfarandi: Í tilefni fullyrðingar þess efnis að Baugur Group hafi ráðið einkaspæjara í Bandaríkjunum er bent á að fyrirtæki Jóns Geralds Sullenberger, Nordica Inc., hóf málaferli á Íslandi í nóvember 2002 vegna slita Baugs Group á viðskiptum við fyrirtækið. Um líkt leyti hóf Baugur Group mál gegn Nordica í Bandaríkjunum vegna viðskiptaskulda. Þarlend lögmannsstofa annaðist þann málarekstur fyrir hönd Baugs Group eftir þeim reglum og venjum sem gilda í Bandaríkjunum, sem eru í ýmsu frábrugðnar íslenskum réttarfarsreglum. Þar í landi er fullkomlega heimilt og alls ekki óvenjulegt að ráða sjálfstæða rannsóknaraðila, sem hafa starfsleyfi sem slíkir, til gagnaöflunar í dómsmálum. Tilraun Morgunblaðsins til að sverta þennan málarekstur af hálfu Baugs Group er því í rauninni ekkert annað en gagnrýni á réttarfar í Bandaríkjunum. Sú mynd sem Styrmir Gunnarsson dregur upp í grein sinni í Morgunblaðinu í dag hefur þann eina tilgang að gera félagið og forráðamenn þess tortryggileg í augum almennings. Þetta er áróðursbragð. Hvers vegna skyldi Baugur Group ekki verja hendur sínar í dómsmálum? Hvort skiptir þar meira máli mismunandi stærð fyrirtækjanna eða rétt niðurstaða í deilumálum? Hitt er annað mál að á öllum tímum fer fram hagsmunamat varðandi slíkan málarekstur, hvort minni hagsmunir eigi að víkja fyrir meiri. Í Bandaríkjunum er vel þekkt að aðilar sem eiga í útistöðum við stærri fyrirtæki leiti leiða til að valda svo miklum óþægindum og leiðindum, auk kostnaðar, að á einhverjum tímapunkti finni gagnaðili sig knúinn til að semja sig frá málinu. Var undanfarandi kæra Jóns Geralds til RLS liður í slíkri aðferðafræði? Samkomulag um lok og niðurfellingu allra málaferla um mitt ár 2003 var gert í góðri trú af hálfu Baugs Group hf. þannig að fyrirtækið fengi starfsfrið um leið og komið var til móts við kröfur gagnaðilans. Það er því rangt sem Morgunblaðið heldur fram Baugur Group hafi borgað sig frá málaferlum sem félagið sjálft hafi stofnað til. Jón Gerald Sullenberger hefur enga réttmæta ástæðu til að dreifa þeim óhróðri um Baug Group og forráðamenn þess sem hann gerir á síðum Morgunblaðsins í dag. Því miður er komið á daginn að það voru mistök að gera slíkan samning við Jón Gerald enda hann augljóslega búin að brjóta þá trúnaðarskyldu sem var hluti hans með því að upplýsa Morgunblaðið um efni samningsins. Að gefnu tilefni skal þó tekið fram að sáttin takmarkaði á engan hátt upplýsingaskyldu aðila þess gagnvart yfirvöldum eða dómstólum og RLS var afhent sáttin af hálfu Baugs Group þegar og hún hafði verið gerð. Forsíðufrétt Morgunblaðsins er að forsvarsmenn Baugs eiga að hafa gefið lögfræðingum skipanir um að ganga frá Jóni Gerald Sullenberger viðskiptalega og fjárhagslega. Ekki hefur tekist betur til en svo að í baksíðufrétt blaðsins er fullyrt að félagið hafi greitt honum 120 milljónir króna fyrir lyktir allra málaferla. Það er með öllu óskiljanlegt hvers vegna útkjáð deilumál eru dregin fram í dagsljósið meir en 2 árum síðar til að sverta annan deiluaðilann en draga taum hins. Eina mögulega skýringin er sú, sem að framan greinir, það er verið að drepa aðalatriðum málsins á dreif og slá ryki í augu almennings. 27. september 2005.F.h. Baugs Group hf.Hreinn Loftsson stjórnarformaður.
Baugsmálið Fréttir Innlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Sjá meira