Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. október 2026 17:45 Danski fáninn og brjóstmynd af Hitler. Danska ríkisútvarpið Lögregla í Svíþjóð fann 31 skotvopn, meira en fjórtán þúsund skotfæri og mikið safn muna tengdra nasistum við húsleit hjá 37 ára dönsk-sænskum manni í Gullringen nærri Kalmar í Svíþjóð.
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar nú í nóvember. Danska ríkisútvarpið hefur fengið aðgang að rannsóknargögnum sænsku lögreglunnar, sem nema meira en tvö þúsund blaðsíðum. Málið hófst þegar lögreglumenn urðu varir við manninn og bróður hans í Gullringen skömmu fyrir síðustu áramót. Samkvæmt lögregluskýrslu þótti maðurinn óvenju taugaveiklaður og sýna merki um fíkniefnaneyslu. Lögregla ákvað í kjölfarið að gera húsleit. Brjóstmynd af Hitler og hakakrossar Við leitina á heimili mannsins og í geymsluhúsnæði sem hann hafði aðgang að fundust alls 31 vopn og meira en fjórtán þúsund skotfæri. Þar á meðal voru sex haglabyssur, þrjár hálfsjálfvirkar skammbyssur og tveir hálfsjálfvirkir rifflar. Lögreglumenn fundu einnig stóra fána með hakakrossum, merki SS-sveita, nasistabúninga og brjóstmynd af Adolf Hitler. Lítill danskur fáni var hafður við hlið brjóstmyndarinnar. Þessir voru á meðal muna sem maðurinn hafði til sýnis.Danska ríkisútvarpið Varsla slíkra muna er ekki ólögleg í Svíþjóð og maðurinn er því ekki ákærður vegna þeirra. Hann er hins vegar meðal annars ákærður fyrir vörslu á sprengjuhylki, tólf táragasblysum, 96 merkjaskotum og kveikiþráðum. Hann hafði áður einnig verið grunaður um að hafa haft nokkrar dýnamítstangir undir höndum en sá liður rataði ekki í ákæruna. Saksóknarinn Jacob Semark hefur lýst haldlagningunni sem einni þeirri umfangsmestu á vopnum sem gerð hefur verið í Svíþjóð. „Dauði yfir alla Gyðinga“ Við rannsókn málsins fór lögregla einnig í gegnum síma mannsins og samskipti hans við mann sem hann lýsti sem fyrrverandi samstarfsmanni með sameiginlegan áhuga á síðari heimsstyrjöldinni. Maðurinn skrifaði meðal annars orð sem þýða mætti sem „dauði yfir alla Gyðinga“ og ræddi við vin sinn um að halda upp á afmælisdag Hitlers 20. apríl með góðum mat og skála fyrir „foringjanum“. Safn fána frá Þýskalandi nasismans átti maðurinn sömuleiðis.Danska ríkisútvarpið Í myndskeiði sem maðurinn tók á heimili sínu í desember 2024 sýndi hann einnig safn nasistamuna. Samkvæmt endurriti lögreglu lauk myndbandinu á nasistakveðju og orðunum „Heil Hitler“ og „dauði yfir alla Gyðinga“. Maðurinn neitar því hins vegar að vera nasisti. „Ég er alls ekki nasisti. Þetta er bara í gamni,“ sagði hann við yfirheyrslu lögreglu, samkvæmt gögnum DR. Hann segir áhuga sinn á mununum vera söfnunaráhuga sem nái aftur til barnæsku og segist einnig safna munum tengdum kommúnismanum. Langafi hans var SS-foringi Faðir mannsins hefur staðfest við lögreglu að fjölskyldan hafi lengi haft mikinn áhuga á vopnum og veiðum. Hann sagði jafnframt að langafi hins ákærða hefði verið foringi í SS-sveitum nasista og að það skýrði að hluta hvers vegna sonurinn hefði nasistamuni undir höndum. Hinn ákærði segir vopnin að stórum hluta hafa komið frá látnum frænda sínum í Danmörku. Frændinn hafi komið með vopn í heimsóknir til Svíþjóðar og maðurinn sjálfur hafi einnig tekið vopn með sér frá Danmörku. Hann hafði ekki tilskilin leyfi fyrir vopnunum. Maðurinn hefur viðurkennt brot á vopnalögum en hafnar því að brotið eigi að teljast gróft. Hann er ekki ákærður fyrir að hafa ætlað að nota vopnin til árásar. Réttarhöld í málinu fara fram í Kalmar í nóvember.
Svíþjóð Danmörk Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira