Lánshæfi staðfest 20. mars 2006 00:01 Sturla Pálsson
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poors staðfesti fyrir helgi lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Einnig var staðfest einkunnin A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur eru stöðugar, að mati Standard & Poors. Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Íslands, segir lánshæfismatið mjög gott og telur að það staðfesti sterka stöðu ríkissjóðs. Við erum að borga niður erlendar skuldir og lánshæfismatið endurspeglar sterka stöðu ríkissjóðs samanborið við önnur lönd, sagði hann. Þá sagði Sturla gott lánshæfismat Standard & Poors ánægjulegt í ljósi þeirra efasemda sem heyrst hafi undanfarið. Matsfyrirtækin kafa hvað dýpst ofan í staðreyndir mála áður en þau gefa út álit sín og okkur finnst að þau eigi að hafa meiri vigt en álit annarra aðila, sagði Sturla og vísaði í skýrslur fjármálafyrirtækja á borð við Fitch, sem sagði lánshæfishorfur ríkissjóðs neikvæðar. Niðurstöðurnar eru í takt við það sem okkur finnst satt og rétt og ég held að lánshæfiseinkunnir Standard & Poors hjálpi til við að róa markaðinn, sagði Sturla.
Innlent Viðskipti Mest lesið Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Sjá meira