Stofna dreifingarfyrirtæki í Danmörku Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. maí 2006 06:00 Svenn Dam Svenn er forstjóri 365 Media Scandinavia.
Post Danmark og 365 Media Scandinavia, dótturfélag Dagsbrúnar, hafa komist að samkomulagi um stofnun sameiginlegs dreifingarfyrirtækis í Danmörku. Fyrirtækið kemur til með að dreifa Nyhedsavisen, væntanlegu fríblaði 365 Media, á landsvísu í Danmörku. Dreifingarfyrirtækinu hefur ekki enn verið gefið nafn, en 365 Media Scandinavia mun eiga í því 51 prósent og Post Danmark 49 prósent. Við komum einfaldlega á fót því dreifingarkerfi sem skortur hefur verið á í Danmörku fyrir dreifingu ómerktra sendinga og tryggjum að þeim verði komið til viðtakenda fyrir klukkan 7 á hverjum morgni sex daga vikunnar. Við hlökkum til að nýta reynslu okkar á nýjum markaði, segir Helge Israelsen, forstjóri Post Danmark. Svenn Dam, forstjóri 365 Media í Danmörku, segir litið á stofnun dreifingarfyrirtækisins sem lokaáfangans í undirbúningi þess að koma á fót fríblaðinu Nyhedsavisen. Við vitum hversu mikilvægt það er að engum hefur tekist að ná utan um dreifingarmálin. Þess vegna er það augljóslega mikið tækifæri að komast í samstarf við fyrirtæki sem þekkir dreifingarmál í Danmörku hvað best, segir hann. Post Danmark er í meirihlutaeigu danska ríkisins. Í viðtali við viðskiptablaðið Børsen í gær veltir fjölmiðlafræðingurinn Jørgen Poulsen upp þeirri spurningu hvort nýju dreifingarfyrirtæki verði stætt á að neita að dreifa fríblöðum samkeppnisaðila, svo sem fyrirhuguðu blaði Jyllands-Posten og Politiken. Samkeppniseftirlitið danska hefur málið til skoðunar.
Viðskipti Mest lesið Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Viðskipti innlent Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Neytendur Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Neytendur Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sektað fyrir að auglýsa of mikið fyrir Áramótaskaupið Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Endurbættur Kaffivagn opnar aftur í dag Gleðiefni að fjármálaráðherri tali um aðhald í ríkisfjármálum Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðunina Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Sjá meira
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent