Ekki tekið mið af 91 milljarðs verðmætamati 3. nóvember 2006 06:45 Dagur B. Eggertsson. Borgarfulltrúinn segir að hlutur Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun hafi verið seldur fyrir smánarverð.
Á borgarráðsfundi í gær lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram bókun um að borgarstjóri Reykjavíkur hafi selt hlut borgarinnar í Landsvirkjun fyrir óviðunandi verð. En hluturinn var seldur miðað við að heildarverðmæti fyrirtækisins væri 61 milljarður. Samkvæmt verðmætamati sem ParX, viðskiptaráðgjöf IBM, vann var heildarverðmæti fyrirtækisins hins vegar um 91 milljarður. Verðið sem Reykjavíkurborg seldi hlutinn á miðast því við að verðmætamat fyrirtækisins sé 30 milljörðum lægra en samkvæmt verðmætamatinu. Kaupverðið er nánast það sama og rætt var um í samningaviðræðum borgarinnnar og ríkisins þegar slitnaði upp úr þeim síðastliðinn janúar. Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi, oddviti Samfylkingarinnar í borgarráði, segir að í janúar hafi allir kjörnir borgarfulltrúar verið sammála um að þeir rúmlega 25 milljarðar sem ríkið vildi greiða fyrir hlutinn, sem byggt var á því mati að heildarverðmæti fyrirtækisins væri 61 milljarður, væri of lágt verð. Nú hefur Reykjavíkurborg selt hlutinn fyrir það verð án þess að tekið hafi verið mið af 91 milljarðs verðmætamatinu. ,,Okkur óraði ekki fyrir því að borgarstjóri myndi ekki taka mið af nýju verðmætamati og selja hlutinn á verði sem er fjarri því að vera ásættanlegt,“ segir Dagur. Fyrirspurnir fulltrúa Samfylkingarinnar verða teknar fyrir á borgarráðsfundi í næstu viku.
Innlent Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira