Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Eiður Þór Árnason skrifar 3. nóvember 2026 21:32 Einar og Sanna tókust á í nýjasta þætti Sprengisands sem sendur var út á sunnudag. Samsett Mynd Borgarfulltrúi Framsóknarflokksins segir vinstrið í borgarstjórn aldrei munu styðja hagræðingaraðgerðir í borginni og að það hafi legið fyrir í langan tíma að taka þyrfti utan um rekstur Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi Vinstrisins segir óljóst hver áhrifin af uppsögnum innan borgarinnar verði og þær gætu leitt til kostnaðar seinna meir. Fjárfesta þurfi í húsnæði.
Borgarfulltrúarnir Einar Þorsteinsson hjá Framsókn og Sanna Magdalena Mörtudóttir hjá Vinstrinu ræddu uppsagnir hjá Reykjavíkurborg í Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudag. Sanna gagnrýndi þar orðræðu meirihlutans í málinu og sagði hann tala eins og þetta starfsfólk hefði gert lítið sem ekkert gagn. „Þetta er allt til þess að draga upp þá mynd að hið opinbera, samfélagslegur rekstur, sé orðið eitthvað of stórt sem við verðum að taka niðurskurðarhnífinn á án þess að ræða langtímahugsun og hvernig við sjáum fyrir okkur að gera hlutina,“ sagði Sanna. Einar sagði hins vegar að ljóst hefði verið fyrir löngu að taka þyrfti til í rekstri borgarinnar sem væri ekki sjálfbær. „Mér finnst Sanna taka dálítið djúpt í árinni þegar hún er að gagnrýna þetta og tínir til alls konar sjónarmið. Við vitum það að sósíalistar eru vinstra megin á vængnum og munu aldrei styðja hagræðingaraðgerðir. Þannig að hún er bara trú sinni afstöðu.“ Uppsagnirnar hefðu auðvitað áhrif en fyrst og fremst væri verið að reyna að vernda hagsmuni íbúa. Þá gagnrýndi Sanna hversu litla aðkomu minnihlutinn hefði haft að málinu. „Ég er ekki í þessum niðurskurðarhópi. Við fengum ekki aðkomu og gerðum athugasemd við það, af því auðvitað ef þú ert að fara í svona miklar breytingar þá þarftu að velta upp öllum hliðum: Hvernig mun þetta hafa áhrif? Erum við jafnvel að fresta kostnaðinum? Mun hann birtast einhvers staðar seinna meir?“ „Allir þeir í borgarráði sem eru aðalmenn þar fengu sæti í hagræðingarhópnum og Sanna er þar áheyrnarfulltrúi. Það breytir því hins vegar ekki að Sanna hefur engan áhuga á því að ráðast í hagræðingu yfirhöfuð, hvort sem það er í meirihluta eða minnihluta,“ segir Einar. „Hvar hefur það komið fram?“ skýtur Sanna inn í, sem var í meirihluta borgarstjórnar fram í maí. „Við höfum gert ýmislegt.“ Reynt að verja grunnþjónustuna „Við erum að reyna að vernda framlínuþjónustuna, grunnþjónustuna við íbúa. Það er forgangsatriðið. Það hefur verið skilyrðið í öllum okkar aðgerðum núna hingað til, þessar þrjár uppsagnarlotur sem enginn hefur gaman af því að ráðast í, að vernda grunnþjónustuna,“ sagði Einar. „Við höfum verið að gera skipulagsbreytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði, breyttum því hvernig þjónustan er veitt úti í hverfunum og erum meira að miða við málaflokka frekar en hverfaskiptingu. Það fól í sér uppsagnir og breytingu á fyrirkomulaginu. Svo förum við í það að afmarka störf í miðlægri stjórnsýslu og kríterían var skýr, að þetta ættu ekki að vera störf sem þjónusta íbúa með beinum hætti heldur meira að vinna stjórnsýslustörf inni í kerfinu og þjónusta eigið svið.“ „Ég ætla ekki að halda því fram að það að segja upp 130 manns á örfáum mánuðum hafi engin áhrif. Auðvitað hefur það áhrif. En markmiðið er, og það felst í því ábyrgð stjórnenda og okkar, að útfæra verkefni og starfsemi sviðanna þannig að þetta hafi ekki áhrif á fólkið okkar úti í framlínunni og þjónustuna við íbúana,“ bætti hann við. Vill fjárfestingu í húsnæði Sanna segir að reynt hafi verið að teikna upp þá mynd að rekstrarleg staða borgarinnar sé mikið verri en í nágrannasveitarfélögunum. „Þetta er auðvitað staða sem sveitarfélög eru að eiga við. Það eru alls konar ytri þættir út af verðbólguástandinu í dag. Það eru fjármagnsliðir, það þýðir bara að það getur verið dýrt að taka lán og greiða vextina sem hefur áhrif. Þá hafa afskriftir áhrif á rekstrarreikninginn.“ En það breytir því ekki að það er mikill hallarekstur á borginni, líka A-hlutanum ef við tökum hann bara. „Við þurfum auðvitað að sýna ráðdeild í rekstri. Við þurfum að spyrja okkur: Eru einhverjir útgjaldaliðir sem eru ósjálfbærir og erum við ekki að fara í aðgerðir sem eru líklegar til þess að auka kostnaðinn seinna meir? Af því að þótt þú lækkir launakostnað þá stundum eykst hann ef þú ert að útvista þjónustunni og biðja aðra um að gera þetta. Þá kemur þetta ekki undir launakostnaði heldur kostnaði sem þú stofnar til og þarft að greiða,“ bætti Sanna við. „Við viljum skoða alla leiðina. Við viljum gera hlutina með sjálfbærum hætti og það sem ég er að reyna að draga fram sem einhvers konar lausn sem er eðlilegt að skoða er: Finnst okkur eðlilegt að nota marga milljarða yfir bara nokkur ár, að skattpeningar Reykvíkinga fari í að niðurgreiða okurleigu því það er staðan. Svo ég taki þetta aftur fram: 1,8 milljarðar á einu ári sem fer til leigjenda sem eru á markaðsvæddum óöruggum leigumarkaði þar sem jafnvel brunavarnir eru ekki í góðum málum.“ „Fólk býr við mjög mikið óöryggi þannig að ég ætla að nefna þetta. Ef við viljum byggja upp borgina með sjálfbærri leið þá hljótum við að spyrja okkur: Þurfum við ekki að fókusa á húsnæðismálin og ekki eftirláta markaðnum? Því markaðurinn kostar okkur. Hann kostar okkur 1,8 milljarða að lágmarki í útgreiðslu húsnæðisstuðnings sem fer bara í vasa leigusala. Þetta er ekki sjálfbært. Við heyrum mjög lítið um húsnæðismálin frá þessum meirihluta,“ sagði Sanna.
Borgarstjórn Reykjavík Framsóknarflokkurinn Vinstrið Rekstur hins opinbera Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira