Klassík við kertaljós í Hafnarborg 5. nóvember 2006 14:00 Danwen Jiang og Tríó Reykjavíkur Heimsþekktur fiðluleikari leikur á kertaljósatónleikum Tríós Reykjavíkur. MYND/anton brink
Hinir árlegu kertaljósatónleikar Tríós Reykjavíkur verða haldnir í Hafnarborg í kvöld. Yfirskrift þeirra er „Klassík við kertaljós“ en jafnan skapast einstök stemmning á þessum tónleikum þar sem fögur tónlist er leikin við flöktandi kertaljós. Efniskráin miðast við að veita bæði birtu og yl inn í vitund áheyrenda. Tríóið skipa píanóleikarinn Peter Máté, Gunnar Kvaran sellóleikari og Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari sem einnig mun leika á víólu á tónleikunum. Gestur tríósins að þessu sinni verður fiðluleikarinn, Danwen Jiang, sem ættuð er frá Kína. en er búsett í bandaríkjunum þar sem hún starfar sem prófessor í fiðluelik við tónlistardeild ríkisháskólans í Arizona. Jiang er margverðlaunaður tónlistarmaður og hefur leikið inn á fjölmarga hljómdiska og hlotið lof fyrir frammistöðu sína. Þetta er fyrsta Íslandsheimsókn Jiang sem kemur hingað fyrir milligöngu Guðnýjar Guðmundsdóttur sem hefur heimsótt Ríkisháskólann í Arizona og haldið þar masterclassa fyrir fiðlunemendur. „Þetta er því nokkurs konar skipti,“ útskýrir Jiang og áréttar að þær stöllur hafi oft leikið kammermúsík saman. Á efnisskrá kvöldsins eru sónata eftir Beethoven, sónata fyrir tvær fiðlur eftir Prookovieff og píanó kvartett Op.47 eftir Schumann og píanó kvartett Op.47 eftir Schumann. „Þetta er mjög falleg efnisskrá, meistaraverk frá öllum tímabilum og mjög ólíkir stílar“ segir Jiang, sem við höfum skemmt okkur vel við að æfa.“ Danwen Jiang leikur Stradivarius fiðlu sem smíðuð var árið 1727 og kallast „Ex-Ries “ Tónleikarnir hefjast 20. í kvöld.
Menning Mest lesið Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Lífið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Eldgos og elskhugar á frumsýningu Eldanna Lífið „Stolt af því að hafa ekki gefist upp á sjálfri mér“ Lífið Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Lífið samstarf Yfir sig ástfangin og býr bæði á Spáni og Íslandi Lífið Fleiri fréttir Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“