Opnar sig um bótoxnotkunina Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. september 2026 16:47 Jennifer Lawrence opnaði sig um bótoxnotkun sína í vikunni. EPA Leikkonan Jennifer Lawrence gengst við notkun fegrunarlyfsins bótox eftir miklar vangaveltur fólks undanfarin ár um að hún hafi lagst undir skurðhnífinn. Hún hafi líka viljað láta fjarlægja fitu úr kinnum sínum en gæti það ekki því umbreytingin yrði of augljós.
Jennifer Lawrence er ein stærsta stjarna Hollywood, vakti heimsathygli fyrir leik sinn sem Katniss Everdeen í Hungurleika-kvikmyndunum og Raven í X-manna-kvikmyndaröðinni og vann til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Silver Linings Playbook (2012). Fegurðarstaðlar eru hvergi jafn skakkir og í Hollywood þar sem leikkonur mega varla eldast og hvað þá verða hrukkóttar. Fegrunaraðgerðir eru því daglegt brauð á þeim bænum með tilheyrandi bótox-notkun og andlitsstrekkingum. Sviðsljósinu fylgir líka sú hliðarverkun að stöðugt er verið að velta vöngum yfir útliti leikkvenna í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Mikið hefur verið spáð og spekúlerað í útliti Jennifer Lawrence síðustu ár enda hefur heimsbyggðin fylgst með henni eldast frá því hún var táningur fram á fertugsaldur. Lawrence var til viðtals í tímaritinu Vogue í vikunni og viðurkenndi þar að hafa nýtt sér fegrunarlyf í gegnum tíðina. „Ég þarf að geta hreyft andlitið. Ég nota smáskammta af bótoxi (e. baby botox) en ég get ekki fengið mér mikið af því. Ef húðin verður aðeins meira slapandi en ég vil þá virkar hún allavega döggvaðri og fallegri,“ sagði hún í viðtalinu. Jennifer Lawrence hefur verið ein stærsta leikkona Hollywood síðustu fimmtán ár.EPA Lawrence segist vilja fara í aðgerð til að fjarlægja fitu úr kinnum (e. buccal fat removal procedure) sem hefur verið vinsælt meðal stjarnanna en gæti það eiginlega ekki. „Ég myndi vilja láta fjarlægja fitu úr kinnunum en ég get það ekki því allir myndu taka eftir því, en þú veist allavega að mig langar í það,“ sagði hún. Leikkonan segist þó vera efins um aðgerðir þar sem fita er færð milli líkamsparta. „Ég er mjög hrædd við þessa fituflutninga. Ég styð annað fólk sem fer í þannig því mig langar til að fylgjast með og sjá hvað gerist, en ég veit samt ekki með það,“ sagði hún. Þess utan hataði hún að láta lita á sér hárið, sem væri fylgifiskur starfsins, og að fara í naglasnyrtingu. Sögusagnir um nefaðgerð ekki á rökum reistar Lawrence ræddi nýverið við The New Yorker um breytingar á líkama sínum í kjölfar þess að hún eignaðist tvö börn, það fyrsta árið 2022 og það seinna árið 2025, með eiginmanni sínum, Cooke Maroney. „Líkaminn jafnaði sig algjörlega eftir fyrsta barnið. En ekki eftir seinna barnið,“ sagði Lawrence um líkama sinn eftir barnsburð. Hún hefði íhugað að fara í brjóstastækkun en væri sennilega ekki jafn æst í það ef hún væri ekki í sviðsljósinu. Sögusagnir um að Lawrence hefði farið í lýtaaðgerð hófu að ganga árið 2023 eftir að Lawrence sneri aftur í sviðsljósið eftir barnsburð og virtist hafa breyst þónokkuð. Hún segir það einfaldlega tengjast því að eldast. „Ég óx úr grasi. Ég missti mikið af barnafitu í andlitinu og andlitið á mér breyttist því ég er að eldast,“ sagði Lawrence í viðtali sem hún tók við Kylie Jenner fyrir Interview Magazine árið 2023. „Allir héldu að ég hefði farið í nefaðgerð en ég er með nákvæmlega sama nefið og kinnarnar mínar urðu minni, takk fyrir að minnast á þetta,“ sagði hún í viðtalinu.
Hollywood Bandaríkin Lýtalækningar Bíó og sjónvarp Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira