Bætur vegna hlerana 30. nóvember 2006 04:00
Karlmanni hafa verið dæmdar 50 þúsund krónur í miskabætur vegna þess að lögreglan á Sauðárkróki hleraði síma hans í desember árið 2004. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn var grunaður um að hafa átt aðild að eldsvoða í húsi við Bárustíg á Sauðárkróki hinn 4. desember árið 2004 þar sem einn maður lést. Lögreglan fékk upplýsingar um símtöl úr og í síma mannsins hinn 3. og 4. desember og var sími hans hleraður frá 9. til 22. desember sama ár. Þessar aðgerðir voru heimilaðar með dómsúrskurði. Ekki var gefin út ákæra á hendur manninum. Maðurinn byggði kröfu sína á því að hann hefði verið beittur þvingunaraðgerðum og að umfjöllun um málið í fjölmiðlum hefði valdið honum andlegum þjáningum. Maðurinn fór fram á hálfa milljón króna í bætur. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að að aðgerðir lögreglu hafi falið í sér ólögmæta meingerð gagnvart manninum en að jafnframt hefði ekki verið sýnt fram á að lögreglumenn hafi átt frumkvæði að umfjöllun fjölmiðla um eldsvoðann. Dómurinn taldi því að greiða ætti manninum 50.000 krónur í miskabætur vegna skerðingar á einkalífi hans.
Innlent Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira