Mikil ásókn í erlend verðbréf 31. mars 2006 11:51
Mikil sókn hefur verið í erlend verðbréf síðustu mánuði. Í Morgunkorni Glitnis segir að það endurspegli að líkindum væntingar um gengislækkun krónunnar. Í leiðinni hafi sóknin í erlend verðbréf átt þátt í gengislækkun krónunnar undanfarið. Nettókaup Íslendinga á erlendum verðbréfum námu samtals 29 milljörðum króna í síðasta mánuði og er um að ræða önnur mestu nettókaup á erlendum verðbréfum í einum mánuði frá því byrjað var að safna saman upplýsingum um þessi kaup. Mestu kaupin voru hins vegar í janúar en þau námu ríflega 33 milljörðum króna. Samtals voru því keypt verðbréf erlendis nettó fyrir tæpa 63 milljarða króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins samanborið við tæpa 7 milljarða á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í Morgunkorni Glitnis. Þá segir jafnframt að stóraukin viðskipti með erlend verðbréf megi rekja til fjárfestingaþarfar lífeyrissjóðanna og umfangsmikilla útrásarverkefna fyrirtækja og einstaklinga. Þó megi reikna með því að dragi úr nettókaupum erlendra verðbréfa á næstunni þar sem flest bendir til minna umfangs útrásarverkefna. Þá hafi gengi krónunnar lækkað töluvert síðustu vikurnar og minni gengislækkun sé framundan. Erlend verðbréfakaup sýnist því ekki jafn freistandi og áður í þessu samhengi.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Sjá meira