Tap Vopnafjarðarhrepps 35,1 milljón króna 17. maí 2006 16:05 Vopnafjörður.
Vopnafjarðarhreppur skilaði 35,1 milljóna krónu tapi á síðasta ári, að því er fram kemur í samanteknum ársreikningi sveitarfélagsins fyrir A og B hluta. A hluti rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins var hins vegar jákvæður um 6,8 milljónir króna. Rekstrartekjur námu 403,6 milljónum á síðasta ári. Þar af námu rekstrartekjur A hluta 299,4 milljónum króna. Í ársreikningum sveitarfélagsins kemur fram að álagningarhlutfall útsvars hafi verið 13,03 prósent, sem sé lögbundi hámark. Álagningarhlutfall fasteignagjalda í A-flokki nam 0,4 prósentum en lögbundið hámark þess er 0,5 próent. Með álagi nemur lögbundið hámark þess 0,62 prósentum. Í B-flokki nam álagningarhlutfallið 1,65 prósentum, sem er lögbundið hámark þess með álagi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2005 nam 278,9 milljónum króna, samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé A hluta 327 milljónum króna. Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir, Félagsheimili, Lyfsala, Hótel Tangi, Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Atvinnulíf „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Viðskipti innlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Fleiri fréttir Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Sjá meira