Enronmaður bíður dóms 26. september 2006 14:23 Kenneth Lay, fyrrum forstjóri bandaríska orkurisans Enron. Hann lést í byrjun júlí. Dómur fellur í dag í máli fyrrum fjármálastjóra fyrirtækisins. Mynd/AFP
Dómur fellur í Houston í Texas í Bandaríkjunum í dag í máli Andrew Fastows, fyrrum fjármálastjóra bandaríska orkurisans Enron, vegna aðildar hans að fjár- og bókhaldssvikum, sem leiddu til gjaldþrots fyrirtæksins í lok árs 2001. Búist er við að hann hljóti allt að 10 ára fangelsisdóm vegna málsins. Fastow viðurkenndi aðild að málinu fyrir tveimur og hálfu ári ásamt þeim Kenneth Lay, fyrrum forstjóra Enron, og Jeff Skilling, eins af æðstu yfirmönnum orkurisans. Lay lést í byrjun júlí en dómur fellur í máli Skillings í næsta mánuði. Fastow var í fyrstu ákærður fyrir 98 atriði, þar á meðal bókhaldssvik, innherjasvik og peningaþvætti. Hann gekkst við tveimur ákæruliðum um aðild að bókhaldssvikum en þau fólu í sér að skuldir Enron voru faldar með það fyrir augum að láta sem fyrirtækið sýndi hagnað. Fastow auðgaðist við sölu á bréfum sínum í félaginu en hefur verið dæmdur til að greiða til baka 30 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 2.100 milljarða íslenskra króna, í reiðufé og eignum.
Erlent Fréttir Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira