Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. september 2026 07:50 Flest lönd búa yfir einhverskonar gullforða. Vísir/Getty Seðlabanki Hollands hefur flutt 86 tonn af gullforða sínum frá Bandaríkjunum og Kanada til London í Bretlandi, vegna vaxandi ólgu í alþjóðamálum. Auðveldara verði að selja gullforðann komi til neyðarástands í Bretlandi heldur en í Bandaríkjunum eða Kanada. „
Með þessu skrefi höfum við bætt nýtingarmöguleika gullforðans. Við gerum ráð fyrir að við þurfum aldrei að nýta gullið, en það er engu að síður nauðsynlegt að styrkja seiglu okkar og viðbúnað,“ hefur breski miðillinn Guardian eftir Olaf Sleijpen, seðlabankastjóra hollenska bankans. Fyrir flutninginn geymdi hollenski bankinn 31,3 prósent af gullforða sínum í New York og 19,7 prósent í Ottawa en eftir flutninginn er hlutfallið í hvoru landi fyrir sig nú 18,5 prósent af hollenska gullforðanum. Hlutfall gulls í eigu hollenskra stjórnvalda sem geymt er í London jókst úr 18,1 prósentum í 32,1 prósent. Bankinn geymir enn 30,8 prósent af gulli sínu í Hollandi. Flutningurinn á gullinu átti sér stað milli mars og ágústmánaða á þessu ári. Guardian hefur eftir John Plassard, sérfræðingi að aðgerðir Hollendinga séu ætlaðar til þess að tryggja skjótara aðgengi ef komi til kreppu. Fram kemur í máli Plassard að aðrir bankar hafi viðrað áhyggjur af gullforða sínum í Bandaríkjunum vegna stöðu heimsmála. Þannig hafi ráðamenn í þýska seðlabankanum viðrað áhyggjur sínar af gullforða þýska bankans í Bandaríkjunum. Þeir hafi þó ekki tekið neina ákvörðun um að flytja gullforða frá seðlabankanum í New York.
Efnahagsmál Bandaríkin Kanada Holland Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira