Risamót á Íslandi í næsta mánuði 19. október 2006 15:59 Þrír íslenskir keppendur taka þátt í mótinu í næsta mánuði Mynd/Vilhelm
Aflraunasambandið IFSA mun í næsta mánuði halda keppnina IFSA Sterkasti maður heims hér á Íslandi. Keppnin fer fram dagana 18.-25 nóvember og er hér um að ræða bæði undankeppni og úrslit. Það er Magnús Ver Magnússon, fjórfaldur sterkasti maður heims, sem sér um skipulagningu mótsins. Byrjað verður á undankeppni þar sem keppt verður í nokkrum riðlum og þeir Benedikt Magnússon, Stefán Sölvi Pétursson og Georg Ögmundsson verða fulltrúar Íslands í keppnini. Hægt er að fullyrða að hér verði um stærsta og öflugasta aflraunamót sögunnar á Íslandi að ræða, en síðast fór keppnin um sterkasta mann heims fram hér á landi árið 1992 þar sem Magnús Ver Magnússon hafnaði í öðru sæti. Magnús segist mjög spenntur fyrir keppninni hér í næsta mánuði og er búinn að tryggja sér aðstoð Reykjavíkurborgar, Alcan og Toyota til að standa við bakið á sér í mótshaldinu. Hann gerir ráð fyrir því að öflugustu kraftajötnarnir á vegum IFSA muni mæta í keppnina, menn eins og litháenska tröllið Zydrunas Savickas sem sigrað hefur fjögur ár í röð á Arnold Classic mótinu.
Innlendar Íþróttir Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Kallaði dómarann tík og rúmlega það Verstappen áfram hjá Red Bull Atli og Eiður í KR Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Hófí Dóra lauk gráðu í líftækni og vann svo fyrsta mót í Finnlandi Björgvin aftur í Breiðholtið ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð „Hefurðu enga sómakennd?“ Hefur Ben Simmons náð botninum? Dagskráin í dag: Bland í poka úr ýmsum áttum Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Sjá meira