Enski boltinn

Scholes kallar Arsenal „f-g leiðin­legt lið“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Scholes fagnar einum af Englandsmeistaratitlunum sem hann vann með Ryan Giggs hjá Manchester United.
Paul Scholes fagnar einum af Englandsmeistaratitlunum sem hann vann með Ryan Giggs hjá Manchester United. Getty/John Peters

Knattspyrnugoðsögnin Paul Scholes er ekki hrifinn af leik Englandsmeistara Arsenal og var óhræddur við að láta þá skoðun í ljós í hlaðvarpinu The Good, The Bad & The Football.

Scholes var vissulega vanur skemmtilegum sóknarfótbolta þegar hann réði ríkjum á miðjunni hjá sigursælu liði Manchester United.

Scholes fór svo langt að kalla Arsenal f-g leiðinlegt lið.

„Maður verður að muna að þetta er skemmtanabransi, skilurðu hvað ég meina? Og þeir skemmta manni mjög sjaldan,“ sagði Scholes.

„Fólk borgar formúgu fyrir að fara að horfa á þá og þetta er f-g leiðinlegt,“ sagði Scholes.

„Ef þú borgar 500 pund fyrir miða (82 þúsund íslenskar krónur), þá ferðu og horfir á þá skora úr föstu leikatriði og koma svo ekki út úr teignum, skilurðu hvað ég meina?“ sagði Scholes.

Arsenal-liðið hefur spilað níu leiki í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og er í efsta sæti með 24 stig í húsi af 27 mögulegum. Liðið hefur skorað 14 mörk og hvert mark er því 1,7 stiga virði.

Arsenal hefur skorað sex mörkum minna en liðið í öðru sæti (Manchester City) og tíu mörkum minna en liðið í þriðja sæti (Birmingham & Hove Albion). Arsenal er samt í fjórða sæti í væntum mörkum (xG) en bara í tíunda sæti yfir sköpuð dauðafæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×