Erfitt að meta áhrif hvalveiða á stuðning við Ísland 24. október 2006 18:33
Sigríður Snævarr, sem leiðir umsóknarferli Íslands um aðild að Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, segir erfitt að meta hvort hvalveiðar Íslendinga hafi áhrif á framboð landsins. Hún segir mikilvægt að fámennar þjóðir fái fulltrúa í ráðið og ef Íslendingar nái kjöri, verði þeir fámennasta þjóðin sem átt hefur fulltrúa í öryggisráðinu. Sigríður hélt erindi í miðstöð Sameinuðu þjóðanna í Reykjavík í dag, á degi Samneinuðu þjóðanna, þar sem hún fór yfir stöðu mála varðandi umsókn Íslands um sæti í Öryggisráðinu. 128 þjóðir af 192 þurfa að styðja umsóknina í atkvæðagreiðslu árið 2008 og kjörtímabilið hefst 2009. Það hefur skapast hefð fyrir því að einhver Norðurlandaþjóðanna sitji í ráðinu annað hvort kjörtímabil og spurning hvort sú hefð haldi. Það hefur þó gerst einu sinni að Norðurlönd náðu ekki kjöri, þegar Svíar komust ekki í ráðið árið 1992. Sigríður vill lítið segja um áhrif hvalveiða Íslendinga á stuðning þjóða við framboð Íslands í Öryggisráðið. Viðbrögðin við veiðunum hafi óneitanlega verið hörð. Það sé hins vegar margt sem ráði því hvaða afstöðu ríki taka þegar kosið er til ráðsins. Þegar Íslendingar gengu í Sameinuðu þjóðirnar fyrir tæpum 60 árum, segir Sigríður að þeir hafi verið fámennasta þjóðin í samtökunum. Nú séu hins vegar tuttugu og fjórar þjóðir fámennari innan samtakanna.
Innlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira