Hald lagt á átta kíló af kókaíni það sem af er ári 29. nóvember 2006 12:00
Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handtekinn í Leifsstöð með stærstu kókaínsendingu sem fundist hefur í fórum eins manns til þessa. Tollgæslan hefur lagt hald á samtals átta kíló af kókaíni það sem af er árinu eða áttfalt meira en allt árið í fyrra. Þetta gerðist við komu mannsins frá Kaupmannahöfn í síðustu viku og nemur magnið af kókaíni þremur kílóum. Það er kílói meira en ung kona reyndi að smygla til landsins í fyrra, sem þá var langstærsta sending til þess tíma. Smásöluandvirði efnisins sem maðurinn smyglaði núna gæti numið þrjátíu milljónum og allt upp í hundrað og fjörutíu milljónir króna, eftir styrkleika efnisins. Efnið var vandlega falið í farangri hans. Ekkert liggur fyrir um það hvort fleiri hafa verið handteknir vegna málsins og varðist lögregla frekari fregna í morgun en líklegt má telja, með hliðsjón af umfangi málsins, að hann hafi átt sér vitorðsmann eða -menn. Starfsmenn sýslumannsembættisins á Keflavíkurflugvelli og fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík vinna að rannsókn málsins. Tollgæslan hefur lagt hald á samtals átta kíló af kókaíni það sem af er árinu, eða áttfalt meira en allt árið í fyrra þegar hald var lagt á aðeins eitt kíló.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira