Ólafur Ragnar og Al Gore í San Francisco 7. desember 2006 11:16 Ólafur Ragnar Grímsson og Al Gore
Forseti Íslands mun gera grein fyrir árangri Íslendinga í nýtingu jarðhita og hvernig sú kunnátta hefur stuðlað að samstarfsverkefnum víða um veröld, á samráðsfundi sem honum og Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna var sérstaklega boðið til, í San Francisco. Fundurinn hefst í dag og eru þátttakendur forstjórar sumra stærstu fyrirtækja Bandaríkjanna, sérfræðingar á sviði tækni og vísinda og áhrifaríkir fjárfestar. Fundurinn er haldinn á vegum fjárfestingasjóðsins Kleiner Perkins Caufield and Byers en það fyrirtæki hefur átt ríka hlutdeild í eflingu nýrra greina í alþjóðlegu atvinnulífi og var meðal annars einn helsti bakhjarl netfyrirtækisins Google. Á samráðsfundinum verður einkum fjallað um þá möguleika sem hin mörgu svið hreinnar orku fela í sér, en þar ber hæst jarðhita, vindorku, sólarorku, líforku en einnig aðrar greinar nýrra orkugjafa. Markmið samræðunnar er að kanna hvernig nýjar leiðir í orkumálum geta hamlað gegn þeirri miklu hættu á loftslagsbreytingum sem blasir við mannkyni á næstu áratugum.
Innlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira