Leggja til breytingar á hertum reglum HPA 27. desember 2006 16:09
Eftir að hafa orðið fyrir almennri gagnrýni á þessu ári vegna meðferðar á Tennessee ganghestum, hafa sumir leiðtogar í greininni lagt til harðari viðurlög fyrir þá sem eru staðnir að því að misbjóða hestum í ágóðaskyni. "Við viljum sjá hrossin kynnt á þann hátt að fólk geti notið þess, vegna þess að þetta er frábærasti hestur í heimi," sagði þjálfarinn Wink Groover á mánudaginn síðastliðinn. USDA er að gera drög að nýrri reglugerðaráætlun til að framfylgja lögum um hrossavernd sem sett verða árið 2007 og yfirfara þær breytingar sem lagðar hafa verið til af níu sérvöldum hrossasamtökum. Lögin banna ómannúðlega meðferð sem er kölluð "soring" sem þvingar náttulegt göngulag, gang hesta sem eru eðlislega mjög hágengir - svokallað "Big Lick"- í sýningarhringnum. Alríkis landbúnaðaryfirvöld hafa varað leiðtoga iðnaðarins við og óskað eftir að þeir noti þetta ár til að hreinsa til hvað varðar líkamlegt ofbeldi sem hefur viðgengist í meira en 35 ár eftir að lögin hafa tekið gildi eða standa ella frammi fyrir strangari reglugerð næsta ár. Ósamkomulag hefur verið meðal rannsóknaraðila yfirvalda og eigenda og þjálfara tegundarinnar vegna lokunnar stórra sýninga ganghesta á þessu ári, þar með talið The Marquee Tennessee Walking Horse National Celebration í Shelbyville. Craig Evans, í USDA samtökum fyrir Tennessee ganghestaræktendur og sýningarsamtök, sagði að þær breytingar sem lagðar væru til séu árangur þriggja ára viðræðna innan níu samtaka. En samt sem áður styðja ekki öll níu samtökin breytingarnar sem lagðar hafa verið til. Samtök þjálfara ganghesta munu ekki vilja mæla með neinum breytingum á USDA, sagði Groover, sem er forseti samtakanna sem staðsett eru í Shelbyville. Reglugerðin leggur til að lengja frávísun frá tveimur árum upp í fimm ár vegna fyrsta brots vegna þrýsijárninga, sem er aðferð við járningar eða klippingu á hófum sem er sérhönnuð til að valda sársauka. Eftir annað brot geta aðilar átt von á ævilangri útilokun frá þátttöku innan greinarinnar. " Þrýstijárningin er augljóslega svívirðilegust og sú sem veldur mestum sársauka og er varanlegasta tegund ofbeldis," sagði Evans. Reglugerðin gerir einnig ráð fyrir banni við plast umbúðum á leggi hesta á meðan þeir taka þátt í sýningum gang hesta. Ein "soring" aðferð sem hefur verið staðfest af USDA felur í sér að setja ertandi og basísk kemísk efni, eins og dísel og kerosín, á framfætur hesta og vefja þá síðan með plast vafningum eða umbúðum. Evans sagði að plast vafningarnir hefðu góð áhrif, en almenn ímynd af gang hestum með umbúðir á leggjum væri of skaðleg fyrir greinina. "Því verður ekki vel tekið á sumum svæðum eins og litmús prófum, en við verðum að vera ávallt vakandi fyrir almenningsáliti" sagði Evans. Öðrum breytingum er ætlað að eyða ruglingi milli slysaáverka eða náttúrulegra áverka og ofbeldis. Margir eigendur kvarta yfir að hrossin sem falli á prófunum eina viku, komist í gegn í næstu viku. Hross sem standast ekki reglur varðandi ör eða bólgu umhverfis hófana verður vísað frá sýningum, en þjálfarar, eigendur eða sýnendur þurfa ekki að þola frávísun, samkvæmt þeim reglum sem lagðar eru til. "Hægt er að vera með vefjabreytingar í stuttan tíma!, sagði Evans. " Sá ruglingur leiðir til mikils ágreinings í skoðunnarstöðinni". Aðrar breytingar fela í sér lengri skilorðs tímabil í viðleitni til að ná síbrotamönnum og veldur því að USDA þarf að taka saman og gefa út ársskýrslu vegna skoðunnar og brota. Groover, þjálfari í Longview, Texas, sagði að ekkert umburðarlyndi sé sýnt vegna ofbeldis gagnvart dýrum í margmilljóna iðnaðinum sem nær frá Kaliforníu til Kentucky "Ég hef verið í ganghestaiðnaðinum í 52 ár. Hann breytist reglulega, en við erum með frábært dýr," sagði Groover. " Við verðum að finna leið til að markaðssetja það innan HPA og samkvæmt lögum." Það sem er megináskorunin er túlkun reglanna varðandi það hvernig ganghestar skulu þjálfaðir, þar með talið notkun málmkeðja og banda, bólstraðra skeifna og vissra kemískra efna. sagði Groover. "Ég vildi óska að við gætum fengið túlkun HPA á máli leikmanna sem allir gætu skilið," sagði Groover. USDA á enn eftir að leggja drög að endanlegri aðgerðar áætlun fyrir hver samtök til að yfirfara, sagði Evans. "Við þurfum að gera okkur grein fyrir að deildin getur breytt þeim verulega" sagði Evans. " Við þurfum að bíða og sjá hvað kemur til baka." Meira um Tennessee Walker hesta á www.hestafrettir.is
Hestar Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Sjá meira