Nokkur skúbb 16. febrúar 2007 11:24 Í ljósi undanfarinna skúbba um allskonar heimili útá landi þar sem miður skemmtilegir hlutir áttu sér stað langar mig að bauna hérna nokkrum nýjum skúbbum sem fjölmiðlar landsins geta smjattað á næstu vikur. Ónefndur maður klauf annan mann í herðar niður fyrir um þúsund árum síðan. Einnig brenndu menn konur og drekktu á Þingvöllum því þær voru grunaðar um galdra. Bændur mótmæltu einnig tilkomu símans. Hafskip fór á hausinn. Hvort var það fjármálaráðherra eða Helgarpósturinn sem negldi síðasta naglann í líkkistuna? Ólafur Skúlason biskup neyddist til að segja af sér vegna ávirðinga um að hafa þuklað á konum. Heiðar Jónsson snyrtir komst heldur en ekki í hann krappann. Vilmundur Gylfason hætti í Alþýðuflokknum og stofnaði Bandalag jafnaðarmanna. Hann dó skömmu síðar. Hrafn Gunnlaugsson olli usla vegna hrossadrápa í kvikmynd sem hann gerði. Hann var rekinn sem dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins og ráðinn aftur sem framkvæmdastjóri sömu stofnunnar. Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði í byrjun níunda áratugarins þegar Gunnar Thoroddsen stofnaði nýja ríkisstjórn. Davíð Oddsson sat lengi sem forsætisráðherra og fór í stríð við eigendur verslanakeðju og eigendur fjölmiðla sem fóru mikið í taugarnar á honum. Mikill styr stóð um herinn á Keflavíkurflugvelli og 30. mars árið 1949 brutust út fjöldaslagsmál á Austurvelli milli borgara og lögreglu. Talið er að njósnað hafi verið um þingmenn á vinstrivængnum. Kannski hefði Gunnar Gunnarsson átt að fá nóbelsverðlaun. Jón Baldvin Hannibalsson var kannski hleraður. Friðrik Þór var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir Börn náttúrunnar en fékk þau ekki. Gísli Súrsson var drepinn í Geirþjófsfirði og Albert Guðmundsson var kjörinn íþróttamaður ársins. Einnig var Vigdís Finnbogadóttir kjörin fyrsti forseti íslands. Þá dró Ástþór Magnússon framboð sitt til baka á sínum tíma. DV var hneyksli. Steingrímur Njálsson flutti í blokk. Eiríkur Hauksson tapaði Eurovision. Hemingway var fullur. Kennedy var myrtur. Beethoven var heyrnarlaus. Jónas frá Hriflu var sagður geðveikur og Jón Leifs hitti Hitler. Ég vona að þessi yfirferð mín komi fjölmiðlum á bragðið fyrir næstu vikur og mánuði. Sigurjón Kjartansson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nóbelsverðlaun Sigurjón Kjartansson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun