Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar 24. október 2026 09:06 Ríkisstjórnin segist vilja stuðla áfram að farsæld allra barna og tryggja að börn og foreldrar hafi aðgang að samþættri þjónustu. Þá hlýtur hún jafnframt að tryggja að sú uppbygging sem þegar hefur átt sér stað haldi áfram. Sveitarfélög hafa lagt mikla vinnu í innleiðingu Farsældarlaganna, þróað nýtt verklag og styrkt þjónustu við börn og fjölskyldur. Þeirri vinnu er þó enn ekki lokið, eins og Ríkisendurskoðun hefur jafnframt bent á í úttekt sinni. Samt er í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 gert ráð fyrir að tímabundið 1,1 milljarðs króna framlag til sveitarfélaganna vegna innleiðingar laganna falli niður. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur meðal annars bent sérstaklega á þessa stöðu og kallað eftir samtali við ríkið um áframhaldandi fjármögnun. Börn með miklar og flóknar þjónustuþarfir eiga ekki að bíða mánuðum eða árum saman eftir sérhæfðum úrræðum og ríkið verður að tryggja að þau úrræði séu til staðar. En svarið við skorti á slíkum úrræðum getur ekki verið að veikja um leið þá þjónustu sem byggð hefur verið upp til að grípa börn fyrr og koma í veg fyrir að vandinn verði meiri. Kastað inn handklæðinu Við setningu Farsældarlaganna var gert ráð fyrir að raunverulegur kostnaður og ávinningur yrðu metin á innleiðingartímanum og fjárþörf sveitarfélaganna síðan endurmetin. Sú kostnaðargreining liggur ekki fyrir með þeim hætti sem gert var ráð fyrir og innleiðingunni því enn ólokið. Það er því undarlegt að gera annmarka á innleiðingunni að rökum fyrir því að draga úr fjármögnun áður en verkinu er lokið. Ef innleiðingin hefur ekki gengið nógu vel á að laga það sem betur má fara og ljúka verkefninu með sóma, ekki veikja það á miðri leið. Og hér verður núverandi ríkisstjórn líka að horfast í augu við eigin ábyrgð. Hún hefur nú farið með málaflokkinn í hátt í tvö ár. Það er of einfalt að rekja stöðuna alla til fyrri ríkisstjórnar þegar núverandi stjórnvöld hafa haft bæði tíma og tækifæri til að bæta úr því sem þau telja hafa farið úrskeiðis. Þörf barnanna hverfur ekki þótt framlag ríkisins hverfi Ef ríkið stígur til hliðar færist kostnaðurinn einfaldlega yfir á sveitarfélögin, sem þurfa þá annaðhvort að finna fjármunina annars staðar í rekstrinum, draga úr annarri þjónustu eða fækka starfsfólki. Það er niðurskurður, sama hvaða nafni hann er nefndur. Sveitarfélögin eru ekki komin á þann stað að geta sagt að ávinningurinn af lagasetningunni sé meiri en kostnaðurinn og á meðan það er þarf að taka samtal um kostnaðarskiptinguna. Barn sem fær rétta hjálp snemma er síður líklegt til að þurfa mun umfangsmeiri og dýrari úrræði síðar. Ef við veikjum fyrsta stig þjónustunnar er hætt við að fleiri börn endi síðar á biðlistum eftir sérhæfðu úrræðunum sem við erum öll sammála um að þurfi að efla. Við þurfum hvort tveggja Auðvitað á að efla sérhæfð úrræði fyrir börn sem þurfa á þeim að halda. Um það ætti enginn að deila. Við þurfum hvort tveggja: öflug úrræði fyrir börnin sem þurfa hjálp núna og snemmtækan stuðning fyrir þau sem enn er hægt að grípa fyrr. Það var einmitt kjarni Farsældarlaganna. Sveitarfélögin vilja almennt halda verkefninu áfram. Þau hafa kallað eftir því að fá að klára innleiðinguna og að ríkið standi áfram við sinn hlut meðan þeirri vinnu er ekki lokið. Spurningin til ríkisstjórnarinnar er: Ætlið þið að klára farsældarverkefnið með sveitarfélögunum eða hafið þið ákveðið að skilja þau eftir með reikninginn? Miðað við fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir er því miður ekki betur að sjá en stjórnvöld hafi valið síðari kostinn. Sveitarstjórnarfólk Framsóknar: Alexander ÁrnasonAnton GuðmundssonÁrni Rúnar ÁrnasonÁsrún Helga KristinsdóttirBirgir JónssonBjarki OddssonBylgja SteingrímsdóttirDaði Geir SamúelssonDíana HilmarsdóttirEinar Freyr ElínarsonEinar ÞorsteinssonEydís Inga SigurjónsdóttirEysteinn Heiðar KristjánssonGunnar Már GunnarssonHalldóra Fríða ÞorvaldsdóttirHelga Rakel ArnarsdóttirJóhanna Erla GuðjónsdóttirJónína BrynjólfsdóttirLiv Åse SkarstadMagnea Gná JóhannsdóttirMatthías BjarnasonMonika Margrét StefánsdóttirNína AxelsdóttirSigurður Líndal ÞórissonSigvaldi GunnlaugssonSonja Lind Estrajher EyglóardóttirSunna Hlín JóhannesdóttirValdimar VíðissonWalter Fannar KristjánssonÞórey Birna Jónsdóttir Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar