Jag och min kändis 5. september 2007 00:01 Ég var að bíða eftir flugi frá Gotlandi þegar ég kom auga á hann. Fyrst horfði ég bara og velti því fyrir mér hvort þetta væri örugglega hann. Ég lét augun hvarfla yfir á aðra farþega og leit svo aftur á hann. Jú, í samanburði við hina var þetta Nikolaj Lie Kaas, fyrsti leikarinn til að fá þrenn Bodil-verðlaun fyrir þrítugt og lék m.a. í Idioterne. Þarna sat hann og dottaði og enginn virti hann viðlits. Svíar! hnussaði ég en bara innan í mér. Þeir vita greinilega ekkert um danska kvikmyndagerðarlist. Blaðamannseðlið tók sig upp. Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað. Átti ég ekki að vinda mér að manninum og segja eitthvað? „Minn bara á Gotlandi! Varstu kannski að leika í bíómynd eða hvað?" Samt sat ég kyrr, enda ruddalegt að ræna þreyttan mann hvíldinni. Ég hef ekki verið nálægt jafnþekktum manni síðan ég mætti - og haldið ykkur fast - Colin McCredie í klósetttröppunum í Háskólabíói. Jú, mikið rétt, rauðhærða Skotanum sem leikur Stuart Fraser í Taggart. Auðvitað falaðist ég eftir einkaviðtali! Hvílíkt skúbb! Ég sveif líka einu sinni á Wyclef Jean úr The Fugees á Fornebu og skiptist á orðum við hann. „Minn bara í Noregi, ha? Stendur eitthvað til? Sjónvarpsþáttur! Gaman, gangi þér rosavel." Um leið og ég kom inn á hótel hringdi ég í vin minn til að segja að ég hefði rétt í þessu verið að rabba við Wyclef Jean. „Hann stóð nú við hliðina á mér á Kaffibarnum um daginn," sagði vinur minn og það rifjaðist upp fyrir mér að hljómsveitin var nýkomin af klakanum. En ég hef aldrei heyrt að Nikolaj hafi komið til Íslands. Hann átti ég alein og þarna svaf hann spottakorn frá mér án þess að nokkur gæfi honum gaum. Og líklega var það þess vegna sem óróinn seytlaðist smám saman úr mér og andardrátturinn varð aftur reglulegur. Þegar kallað var út í vél rumskaði Nikolaj, stóð upp og teygði úr sér. Hann settist rétt sfyrir aftan mig í vélinni en samt var ég pollróleg eins og sú sem umgengist hefur þá ríku og frægu alla tíð. Ég meina, ég á enn tölvupóstfang Colins McCredie! Samt fyndist mér leiðinlegt ef enginn hefði frétt af því að ég hefði næstum því spjallað við sjálfan Nikolaj Lie Kaas. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gerður Kristný Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun