ÍR bar sigurorð af Haukum í æsispennandi leik 2. mars 2007 21:15 MYND/Stefán
ÍR bar sigurorð af Haukum í æsispennandi leik í Iceland Express deildinni í körfuknattleik í kvöld, 95 - 97. Marel Guðlaugsson spilaði í liði Hauka og varð þar með leikjahæsti maður deildarinnar. Hann var heiðraður fyrir leikinn. Leikurinn var jafn allt frá fyrstu mínútu en ÍR-ingar voru þó skrefinu á undan. Eftir því sem leið á leikinn styrktust Haukar og þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum leiddu þeir með fimm stigum. ÍR-ingar tóku þá til sinna ráða og minnkuðu muninn. Þegar innan við ein mínúta var eftir af leiknum jafnaði reynsluboltinn Eiríkur Önundarson leikinn með þremur vítaskotum. Haukar fóru þá í sókn og töpuðu boltanum eftir góða vörn ÍR-inga. Hreggviður Magnússon hljóp þá völlinn endilangan og tróp boltanum í körfuna þegar 1,7 sekúnda var eftir af leiknum og kom ÍR tveimur stigum yfir. Haukar náðu ekki að nýta sér þann tíma sem eftir var og því fór sem fór. Eiríkur Önundarson, leikmaður ÍR-inga, sagði í samtali við Vísi að leikurinn hefði verið afar jafn og að sigurinn hefði getað fallið báðum megin. „Haukar komu tilbúnir til leiks og börðust eins og ljón allan leikinn. Okkur tókst þó að innbyrða sigurinn í lokin." sagði hann. „Haukar eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og við erum að reyna að tryggja okkur sjöunda sætið í deildinni." bætti hann síðan við. „Hreggviður á líka hrós skilið fyrir sigurkörfuna - ég held ég hafi aldrei séð hann fljúga svona upp völlinn áður - það bókstaflega rauk úr honum!" sagði Eiríkur að lokum.
Íþróttir Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira