12. sigur San Antonio í röð 11. mars 2007 10:17 Tim Duncan og Vince Carter ræðast við í leiknum í nótt. MYND/Getty
San Antonio Spurs er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni um þessar mundir og í nótt vann liðið sinn 12. sigur í röð þegar það lagði New Jersey af velli á heimavelli, 93-77. Eins og svo oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur San Antonio, en allir þeir 12 leikmenn sem voru á skýrslu liðsins náðu að skora stig í leiknum. San Antonio hefur heldur betur verið að finna taktinn í síðustu leikjum eftir köflótt gengi framan af leiktíð. Varnarleikur liðsins er að smella og þykir ljóst að liðið er að toppa á réttum tíma fyrir úrslitakeppnina. Til marks um hve öflugur varnarleikur San Antonio var er sú staðreynd að New Jersey náði aðeins að skora 33 stig í fyrri hálfleik. Tim Duncan skoraði 17 stig og tók 13 fráköst hjá San Antonio og Manu Ginobili skoraði 12 stig. Vince Carter var atkvæðamestur hjá New Jersey með 17 stig, en þetta var fimmti tapleikur liðsins í röð. Steve Francis skoraði körfu í þann mund sem lokaflautið gall og tryggði New York eins stigs sigur á Washinton, 90-89. Memphis náði að binda enda á sex leikja taphrinu með því að leggja Charlotte af velli, 115-107. Paul Gasol skoraði 31 stig og tók 15 fráköst fyrir Memphis. Philadelphia vann sinn sjöunda leik í röð í nótt þegar það bar sigurorð af Indiana, 100-96. Þetta var áttundi tapleikur Indiana í röð. Þá skoraði Josh Smith 32 stig og leiddi Atlanta til 99-97 sigurs gegn Minnesota.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Sjá meira