Fjölskyldan gjörsamlega miður sín 21. apríl 2007 12:30
Fjölskylda Cho Seung-hui, mannsins sem banaði 32 samnemendum sínum og kennurum við Virginía Tech-háskólann í Blacksburg í byrjun vikunnar, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hún kveðst miður sín yfir voðaverkum ástvinar síns. Það var systir Cho Seung-hui, sem ritaði yfirlýsinguna fyrir hönd fjölskyldunnar. Þar segir að líf hennar sé búið að vera samfelld martröð undanfarna daga enda séu allir slegnir miklum harmi vegna þessara voðaverka Cho. Ekkert þeirra hafi nokkurn tímann órað fyrir því að Cho væri fær um að fremja slík illvirki. Í yfirlýsingunni segir að fjölskyldan biðji fyrir fórnarlömbunum og ættingjum þeirra sem ganga nú í gegnum svo mikla sorg. Þetta er í fyrsta sinn sem fjölskylda Cho tjáir sig um fjöldamorðin, og að líkindum einnig það síðasta því lögmaður hennar segir að hún muni ekki tjá sig frekar um þetta hörmulega mál. Nánustu ættingjar Cho dvelja nú á óþekktum stað undir vernd lögreglu. Rannsókn lögreglu á blóðbaðinu í Virgina Tech-háskólanum er enn í fullum gangi og vonast lögregla til að hafa einhverjar fréttir að færa í næstu viku. Minningarathafnir fóru víðs vegar fram í Bandaríkjunum í gær og verða fleiri slíkar samkomur haldnar um helgina.
Erlent Fréttir Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira