Bíó og sjónvarp

Þorsteinn kynnir Edduna

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
 

Þorsteinn Guðmundsson leikari verður aðalkynnir Edduverðlaunanna 2007 sem fram fara á Hilton Reykjavik Nordica 11. nóvember.

Þorsteinn var kynnir verðlaunanna árið 2005.

„Þetta leggst bara vel í mig,“ sagði hann í samtali við Vísi, „Við Silvía nótt fórum dálítið yfir strikið í snobbinu síðast en ég vil hafa þetta dramatískt.“

Þorsteinn hvetur alla tilnefnda til að „rífa kjaft“ og sýna miklar tilfinningar við tilnefninguna. Hann hefur til umráða svokallaðan „tárasjóð“ sem greitt verður úr um kvöldið. Upphæðirnar munu hlaupa á einhverjum tíköllum eftir fjölda fallinna tára.

Hann varð fyrst þekktur úr sjónvarpsþáttunum Fóstbræðrum, en er í dag einn ástsælasti uppistandari þjóðarinnar. Hann hefur auk þess leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta.

Þorsteinn var tilnefndur til Edduverðlaunanna árið 2002 fyrir hlutverk sitt í Maður eins og ég.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.