Bíó og sjónvarp

Stelpurnar snúa aftur

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Marnie, Jessa, Hannah og Shoshanna munu snúa aftur á næsta ári.
Marnie, Jessa, Hannah og Shoshanna munu snúa aftur á næsta ári. HBO

Gamanþættirnir Girls eftir Lenu Dunham munu snúa aftur á HBO og hefjast tökur á næsta ári, tíu árum eftir að sjötta serían kom út. Nýja þáttaröðin verður fimm þættir og snúa aðalstelpurnar fjórar allar aftur þó óvíst sé með Hollywood-stjörnuna Adam Driver.

Dunham og félagar greindu frá þessum tíðindum í sameiginlegu myndbandsspjalli á samfélagsmiðlum.

Girls gekk í sex seríur frá 2012 til 2017 og var Dunham allt í senn handritshöfundur, aðalleikkona þeirra og hafði yfirumsjón á vettvangi (e. showrunner). Þættirnir fjölluðu um fjórar vinkonur á þrítugsaldri sem reyna að fóta sig á fullorðinsárum og gera alls konar mistök í leiðinni.

Aðalleikkonurnar fjórar munu snúa aftur í endurkomunnni: Dunham sem Hannah Horvath, Allison Williams sem Marnie Michaels, Jemima Kirke sem Jessa Johansson og Zosia Mamet sem Shoshanna Shapiro. Sömuleiðis mun Andrew Rannells snúa aftur í hlutverki Elijah Krantz.

„Við sögðum alltaf að við myndum bara snúa aftur í Girls ef það væri sérstök saga sem við brynnum fyrir að segja,“ sagði Dunham í yfirlýsingu um þættina.

„Ég hef saknað þessara karaktera en lengi vel gat ég ekki ímyndað mér þá í nútímanum. Síðan, rétt í kringum fertugsafmælið mitt, byrjuðu þeir að tala við mig í sturtunni. Og, eins og þið munið, um leið og fimmmenningarnir byrja að tala er erfitt að stoppa þá.“

Enginn Driver

Tvö áberandi nöfn vantaði í yfirlýsingu HBO um þættina: Adam Driver sem lék Adam, ástarviðfang Hönnuh, og yfirframleiðandann Jenni Konner. Dunham skrifaði um neikvæða reynslu sína af Driver í æviminningum sínum, Famesick, sem komu út í vor.

Dunham sagði að Driver hefði verið „aggressívur í tali, yfirlætisfullur og líkamlega ógnandi“ og rifjaði upp sögu af því þegar hann kastaði stól í vegg vegna þess að hún hafði gleymt línunum sínum. Þá hafi hann verið frjálslegur á tökustað og skeytt litlu um tilfinningar annarra.

Adam Driver var erfiður á setti að sögn Dunham.Getty

Konner var aftur á móti náin vinkona Dunham og lærimeistari í upphafi Girls en eftir því sem á leið súrnaði sambandið. Dunham sagði Konner hafa beitt hana þrýstingi til að semja um jöfn laun fyrir þær og orðið köld og fjarlæg þegar Dunham glímdi við heilsuvandræði.

Girls er jafnan talinn með bestu sjónvarpsþáttum 21. aldarinnar og oft sagður marka tímamót í umfjöllun um ungar konur í sjónvarpi þar sem allt var látið flakka, kynlíf var sýnt á hispurslausan hátt og eðlilegar líkamsmyndir sýndar. Þátturinn hlaut nítján Emmy-tilnefningar og hreppti tvö verðlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.