Birgir Leifur á einu undir pari 15. nóvember 2007 14:54 Birgir Leifur Hafþórsson. Nordic Photos / Getty Images
Birgir Leifur Hafþórsson er í 30.-58. sæti eftir fyrsta hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék á einu höggi undir pari vallarins í dag. Mótið fer fram á San Roque-vellinum á Spáni en Birgir Leifur hóf leik á 10. braut. Hann byrjaði á því að fá tvo skolla á fyrstu þremur holunum en lagaði stöðuna með því að fá fugla á 15. og 16. braut. Á þeirri næstu fékk hann hins vegar aftur skolla og var á einum yfir pari þegar hann var hálfnaður. Hann gerði hins vegar engin mistök á „seinni" níu holunum og nældi sér í fugla á 4. og 9. braut og lauk þar með keppni á 71 höggi, einu undir pari vallarins. Keppnin er gríðarlega jöfn og eru þeir sem luku keppni á tveimur undir pari í 10.-29. sæti. Englendingurinn Robert Coles hefur forystu eftir daginn en hann lék á sex höggum undir pari. Alls hófu 156 kylfingar leik í dag en þeir 30 efstu eftir sex hringi fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira