Slæmur hringur hjá Birgi Leifi í Suður-Afríku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2007 17:13 Birgir Leifur var langt frá því að ná sér á strik í dag. Nordic Photos / Getty Images
Birgir Leifur Hafþórsson lék á sjö höggum yfir pari á fyrsta hringnum á Meistaramóti Alfred Dunhill í Suður-Afríku. Hann var á níu höggum yfir pari þegar tvær holur voru eftir á hringnum en hann náði að fá fugla á bæði sautjándu og átjándu holu. Hann fékk þrjá skramba í dag, á þeirri fyrstu, þrettándu og fjórtándu. Þar að auki fékk hann fimm skolla, sex pör og fjóra fugla. Eins og má ráða af þessu var leikur Birgis Leifs afar óstöðugur í dag en hann sýndi með sínum fjórum fuglum í dag að hann á talsvert mikið inni. Hann er meðal neðstu manna á mótinu, í 130.-137. sæti. Hann þarf að bæta sig talsvert mikið á morgun ef hann ætlar sér að komast í gegnum niðurskurðinn. Sion Beeb frá Wales er í efsta sæti mótsins eftir fyrsta hringinn en hann lék á 67 höggum í dag. Ernie Els er í 7.-14. sæti á tveimur höggum undir pari og Darren Clarke frá Norður-Írlandi í 36.-52. sæti á einu höggi yfir pari.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira