„Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Sindri Sverrisson skrifar 4. nóvember 2026 12:01 Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon verða í sviðsljósinu í Laugardalshöll í kvöld. Samsett/Vilhelm Vadym Brazhnyk, landsliðsþjálfari Úkraínu, gerir sér fulla grein fyrir því hve erfitt verkefni liðið á fyrir höndum gegn Íslandi í Laugardalshöll í kvöld þegar undankeppni EM karla í handbolta hefst. Úkraína hefur komist í lokakeppni EM í þrjú af síðustu fjórum skiptum en árangurinn á mótunum bliknar þó í samanburði við árangur Íslands sem komst í undanúrslit á síðasta móti. Liðin eru í riðli með Serbíu og Eistlandi og komast tvö efstu liðin beint á EM auk þess sem fjögur lið af átta sem enda í 3. sæti í undankeppninni komast á mótið. Á vef úkraínska miðilsins Suspilne segir að Úkraína hefji undankeppnina á erfiðasta verkefninu – útileik gegn Íslandi. Þjálfarinn Brazhnyk nefndi sérstaklega þá Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon, leikmenn Magdeburgar, sem leikmenn sem þyrfti að halda í skefjum. Hann sagði alla vita hvernig þeir spiluðu en að því miður væri sú vitneskja ekki nóg til að stoppa þá. Hópur Íslands í kvöld: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (298/26) Viktor Gísli Hallgrímsson, Barcelona (87/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, SG Flensburg-Handewitt (120/129) Bjarki Már Elísson, Paris Saint-Germain (139/449) Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (75/180) Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (98/222) Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (86/211) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (60/85) Janus Daði Smárason, Barcelona (109/206) Jón Bjarni Ólafsson, FH (2/3) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF (39/81) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (45/158) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (71/217) Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (103/396) Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (5/8) Sigvaldi Björn Guðjónsson, TSV Hannover-Burgdorf (90/233) *Jón Þórarinn Þorsteinsson, Teitur Örn Einarsson og Viggó Kristjánsson sitja hjá í kvöld. „Tveir lykilleikmenn. Þeir spila nákvæmlega eins í Meistaradeildinni og í Bundesligunni eins og með landsliðinu. Við horfðum á myndbönd,“ sagði þjálfarinn við Suspilne. „Já, þetta verður erfitt, en við munum berjast. Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera. En þeir leika samt á alla, þannig að við munum reyna að gera þeim erfiðara fyrir,“ sagði Brazhnyk. „Ísland spilar mjög hraðan handbolta, það verður mjög erfitt að eiga við þá. Þetta er lið sem hleypur allar 60 mínúturnar og spilar líklega ekki 35 sekúndna [sóknir] eins og nú tíðkast í úkraínsku deildinni, heldur 25 sekúndna. Við munum þurfa að hlaupa,“ sagði Brazhnyk. Hann sagði markmiðið skýrt um að komast á EM og rifjaði upp að Úkraínumenn hefðu þurft að bíða milli vonar og ótta inni í búningsklefa í lok síðustu undankeppni, eftir að hafa hafnað í 3. sæti síns riðils, áður en í ljós kom að þeir kæmust á mótið með sjö mörkum betri heildarmarkatölu en Litháen sem lék í öðrum riðli. Ísland hefur komist á hvert einasta Evrópumót á þessari öld eða frá og með árinu 2000. EM karla í handbolta 2028 Landslið karla í handbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sjá meira
Úkraína hefur komist í lokakeppni EM í þrjú af síðustu fjórum skiptum en árangurinn á mótunum bliknar þó í samanburði við árangur Íslands sem komst í undanúrslit á síðasta móti. Liðin eru í riðli með Serbíu og Eistlandi og komast tvö efstu liðin beint á EM auk þess sem fjögur lið af átta sem enda í 3. sæti í undankeppninni komast á mótið. Á vef úkraínska miðilsins Suspilne segir að Úkraína hefji undankeppnina á erfiðasta verkefninu – útileik gegn Íslandi. Þjálfarinn Brazhnyk nefndi sérstaklega þá Gísla Þorgeir Kristjánsson og Ómar Inga Magnússon, leikmenn Magdeburgar, sem leikmenn sem þyrfti að halda í skefjum. Hann sagði alla vita hvernig þeir spiluðu en að því miður væri sú vitneskja ekki nóg til að stoppa þá. Hópur Íslands í kvöld: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (298/26) Viktor Gísli Hallgrímsson, Barcelona (87/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, SG Flensburg-Handewitt (120/129) Bjarki Már Elísson, Paris Saint-Germain (139/449) Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (75/180) Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (98/222) Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (86/211) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (60/85) Janus Daði Smárason, Barcelona (109/206) Jón Bjarni Ólafsson, FH (2/3) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF (39/81) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (45/158) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (71/217) Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (103/396) Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (5/8) Sigvaldi Björn Guðjónsson, TSV Hannover-Burgdorf (90/233) *Jón Þórarinn Þorsteinsson, Teitur Örn Einarsson og Viggó Kristjánsson sitja hjá í kvöld. „Tveir lykilleikmenn. Þeir spila nákvæmlega eins í Meistaradeildinni og í Bundesligunni eins og með landsliðinu. Við horfðum á myndbönd,“ sagði þjálfarinn við Suspilne. „Já, þetta verður erfitt, en við munum berjast. Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera. En þeir leika samt á alla, þannig að við munum reyna að gera þeim erfiðara fyrir,“ sagði Brazhnyk. „Ísland spilar mjög hraðan handbolta, það verður mjög erfitt að eiga við þá. Þetta er lið sem hleypur allar 60 mínúturnar og spilar líklega ekki 35 sekúndna [sóknir] eins og nú tíðkast í úkraínsku deildinni, heldur 25 sekúndna. Við munum þurfa að hlaupa,“ sagði Brazhnyk. Hann sagði markmiðið skýrt um að komast á EM og rifjaði upp að Úkraínumenn hefðu þurft að bíða milli vonar og ótta inni í búningsklefa í lok síðustu undankeppni, eftir að hafa hafnað í 3. sæti síns riðils, áður en í ljós kom að þeir kæmust á mótið með sjö mörkum betri heildarmarkatölu en Litháen sem lék í öðrum riðli. Ísland hefur komist á hvert einasta Evrópumót á þessari öld eða frá og með árinu 2000.
Hópur Íslands í kvöld: Markmenn: Björgvin Páll Gústavsson, Valur (298/26) Viktor Gísli Hallgrímsson, Barcelona (87/2) Aðrir leikmenn: Arnar Freyr Arnarsson, SG Flensburg-Handewitt (120/129) Bjarki Már Elísson, Paris Saint-Germain (139/449) Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (75/180) Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (98/222) Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (86/211) Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (60/85) Janus Daði Smárason, Barcelona (109/206) Jón Bjarni Ólafsson, FH (2/3) Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF (39/81) Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (45/158) Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (71/217) Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (103/396) Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (5/8) Sigvaldi Björn Guðjónsson, TSV Hannover-Burgdorf (90/233) *Jón Þórarinn Þorsteinsson, Teitur Örn Einarsson og Viggó Kristjánsson sitja hjá í kvöld.
EM karla í handbolta 2028 Landslið karla í handbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Geta unnið tíunda leikinn í röð í undankeppni EM „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Bjóða upp á barna FanZone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Sjá meira