Tónlist

HAM stækkar punginn

Það er sjaldan lognmolla þegar HAM er á sviðinu.
Það er sjaldan lognmolla þegar HAM er á sviðinu.
Rokkhátíðin Eistnaflug verður haldin í fjórða sinn á Norðfirði helgina 10.-13. júlí. „Pungurinn á hátíðinni stækkaði allverulega þegar HAM skrifaði undir," segir Stefán Magnússon, sundkennari og skipuleggjandi Eistnaflugs. „Þá vöknuðu margir enda er HAM náttúrlega besta hljómsveit í heimi."

HAM endar Eistnaflugið en á undan verða Brain Police, Forgarður helvítis, Sagtmóðígur, Mammút, Æla og fjölmargar aðrar hljómsveitir búnar að ljúka sér af. Þetta verða einu tónleikar HAM á þessu ári, en sveitin fer sparlega með sig þessi misserin og lék til að mynda bara einu sinni í fyrra, á Aldrei fór ég suður á Ísafirði.

„Svo verður þarna hljómsveitin Contradiction, eldgömul þýsk trash metal-öskurapahljómsveit," segir Stefán. Hann segir hátíðina aldrei hafa verið veglegri en í ár. „Við höldum ótrauð áfram enda verður haldið upp á fimm ára afmæli hátíðarinnar á næsta ári. Við erum farin að finna fyrir áhuga erlendis frá. Norska black metal-sveitin Mayhem hefur til dæmis sýnt áhuga og vill spila að ári. Ég er nú ekki viss um að maður leggi í að fá þá. Þeir eru jú þekktastir fyrir að brenna kirkjur, morð og alls konar rugl."

Mikið verður um dýrðir í tónleikahaldi á Austfjörðum í júlí því helgina eftir Eistnaflug er komið að hinni árlegu LungA-hátíð á Seyðisfirði. Einni viku síðar er svo röðin komin að stórtónleikum á Borgarfirði eystri þar sem Damien Rice, Emilíana Torrini og fleiri koma fram. Austfirðir rokka því feitt í júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.