Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Lovísa Arnardóttir skrifar 2. nóvember 2026 18:03 Steinar Þór Oddsson, Hugleikur Dagsson og Einar Hrafn Stefánsson hönnuðu appið saman. Aðsend Einar Hrafn Stefánsson, stofnandi Icebreaker- smáforritsins, segir það óvænt að appið, sem var hannað fyrir ferðamenn, sé í mikilli notkun heimamanna. Búið er að bæta við appið aukinni þjónustu fyrir Íslendinga og er nú hægt að skoða dagskrár íslenskra hátíða í appinu, til dæmis Airwaves sem hefst í vikunni.
Hann segir fyrstu skrefin hafa verið stigin á Reykjavík Pride, Menningarnótt og Ljósanótt og á RIFF þar sem dagskrár hátíðanna voru settar upp í appinu með viðburðum, tímasetningum og staðsetningum. Iceland Airwaves sé nú einnig með sinn eigin flipa í appinu og notendur geti þannnig skoðað dagskrána, síað hana eftir dögum, fundið tónleikastaði á korti og lesið um listamennina. „Appið var upphaflega hugsað fyrir ferðamenn, en við sáum fljótt að Íslendingar nota það líka til að finna happy hour, veitingastaði og eitthvað að gera. Á Airwaves er dagskráin dreifð um allan miðbæinn og það getur verið púsl að ná öllu sem mann langar að sjá. Ég hef spilað á Airwaves margoft, svo ég þekki hátíðina vel. Við viljum að fólk eyði kvöldinu á tónleikum en ekki í að leita að þeim,“ segir Einar Hrafn Stefánsson, stofnandi Icebreaker. Icebreaker er nýtt app sem er þróuð af sprotafyrirtækinu The Tourist Trapp og hefur það markmið að gera Ísland einfaldara fyrir erlenda gesti. Í tilkynningu um útgáfu þess í sumar kom fram að appið sameini staðbundna þekkingu, ritstýrt efni frá The Reykjavík Grapevine og myndheim eftir Hugleik Dagsson sem teiknaði sérsniðnar myndskreytingar, kortatákn og persónur fyrir appið. Vildu gera meira Einsr segir að þegar stofnendur sáu að innlendir notendur væru svo margir hafi þeir strax farið að hugsa hvað væri meira hægt að gera fyrir hópinn. „Hátíðir eru mjög gott dæmi. Það getur verið hellingur í gangi á einum stað og dagskráin oft dreifð á mismunandi vefsíður og samfélagsmiðla. Við viljum gera það jafn einfalt að finna eitthvað skemmtilegt að gera á hátíð og að finna næsta kaffihús. Það sem við viljum sjá er að fólk sem mætir á íslenska hátíð þurfi ekki að leita að dagskránni, heldur kíki bara á Icebreaker.“
Iceland Airwaves Tækni Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Nýlega kom út nýtt app þar sem ferðamenn eiga að geta fengið allar upplýsingar sem þeir þurfa til að hafa gaman og forðast helstu hættur landsins. 3. júlí 2026 08:20 Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Nýlega kom út nýtt app þar sem ferðamenn eiga að geta fengið allar upplýsingar sem þeir þurfa til að hafa gaman og forðast helstu hættur landsins. 3. júlí 2026 08:20