Matur

Hvít súkkulaði Parfait með jarðaberjum

150g eggjarauður

20g hunang

200g Jóa fel Hvítt súkkulaði

450g Rjómi

250g Syróp( 110g vatn og 140g sykur) leyst upp



Aðferð

Þeytið eggin yfir vatnsbaði setjið svo í hrærivéla skál og þeytið þar til eggin er köld

Bætið þá bræddu hvítu súkkulaði og þeyttum rjóma

(passið að súkkulaði sé um 40'c eins og góður heita pottur svo kaldur rjóminn láti ekki súkkulaði stífna of snemma)

Setjið í form, flott er að setja nokkra liti að lituðum sorbet eða jarðaberja ís með svo marmara áferð fæst á ísinn.

Framreiðið með jarðaberja safa, jarðaberjum 

Jarðaberja safi

(Jarðaber í dós)

1 askja fersk jarðaber

100g sykur

Aðferð

Sigtið berin úr dósinni eða látið fersk jarða ber í örbylgju ofn í 2mín með ögn af sykri þá kemur tær safi sem er lostæti, framreiði með ísnum

fersk jarðaber til skrauts.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.