Ást fær frábæra dóma 14. júní 2008 06:00 Víkingur Kristjánsson samdi verkið ásamt Gísla Erni Garðarssyni. Fréttablaðið/gva
Söngleikurinn Ást, eða Love - The musical, sem Vesturport setur upp í Lyric Hammersmith-leikhúsinu í London hefur hlotið frábæra dóma í hinum ýmsu fjölmiðlum ytra. Gagnrýnandi Daily Mail gekk svo langt að segja að sýningin væri sú besta sem sett hefði verið á svið frá því að nýr listrænn stjórnandi tók til starfa hjá Lyric Hammersmith-leikhúsinu. Evening Standard Critics Choice setur sýninguna meðal fimm bestu leikrita í leikhúsum Lundúna í dag og er hún þar fyrst á blaði. Gagnrýnandi Observer fer einnig fögrum orðum um sýninguna, sem og gagnrýnandi Financial Times sem segir hana góða áminningu til stjórnvalda sem sópa málefnum gamla fólksins gjarnan undir teppið. Sýningin minni okkur á að gamla fólkið deili með okkur menningu og tilfinningum. Sýningin hefur fengið víða góðar viðtökur en einnig slæmar líkt og hún fékk til að mynda í tímaritinu Whats On Stage. Af góðu viðbrögðunum að dæma má gera ráð fyrir því að útrás íslenskrar menningar sé nokkuð sem getur gengið upp. Sýningin er eftir þá Víking Kristjánsson og Gísla Örn Garðarsson en sá síðarnefndi leikstýrði verkinu. Love - The Musical verður sýnd í Lyrics Hammersmith-leikhúsinu til 21. júní. -shs
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira