Björgunaraðgerðir Þráinn Bertelsson skrifar 13. október 2008 06:00 Björgunarsveitir frá Alþjóðlegu aurasálinni, Evrópusambandinu, Rússlandi, Alþjóðabankanum, Sameinuðu þjóðunum eru nú á leið til Íslands til að bjarga íslensku þjóðinni upp úr þeirri ísköldu fjárhagslegu jökulsprungu sem hún hefur komið sér í undir fararstjórn 20 til 30 manna. Einnig stefna hingað bresku freigáturnar „Hefnd" og „Makleg málagjöld" úr sjóher hennar hátignar Bretadrottningar undir stjórn flotamálaráðherranna Gordons Brúns og Alastair Krútts, þeim er ætlað að tína saman óskemmdan farangur leiðangursmanna, gera hann upptækan og skila honum í hendur réttra eigenda í Bretlandi. Alþjóðlegir fjölmiðlar hafa sótt mjög hingað til lands að undanförnu til að fylgjast með yfirlýsingum íslenskra ráðamanna á gjárbarminum. Þeir standa á því fastar en fótunum að a) það sé engum að kenna nema alþjóðlegum segulmisvísunum að fólkið lenti í jökulsprungunni; b) að það séu ekki til betri menn til að stjórna hjálparstarfinu en einmitt þeir sem slysinu ollu með strákslegum glannaskap; c) sérstaklega að þeir treysti sér vel í hjálparstarfið einkum í samstarfi við þá aðila Seðlaferða sem tryggðu þetta ferðalag og báru ábyrgð á að öryggismál væru í lagi. Ekki er víst að framboð Íslands í öryggisráð Sameinaða Alpaklúbbsins bíði hnekki við þetta. Samt þykir mörgum blaðamönnum undarlegt hvernig fjallamennska er stunduð á Íslandi. Fólk fer í fjallaferðir á risajeppum en tekur ekki með sér öryggisútbúnað eins og kaðla, hlífðarföt og ísaxir. Ástandið á slysstað er nú þannig að ofan í sprungunni er nú öll íslenska þjóðin nema eigendur ferðaskrifstofanna sem skipulögðu ferðina, en þeir flugu í áríðandi erindagerðum til sólarlanda á einkaþotum. Algjör samstaða mun ríkja meðal íslenskra ferðamanna sem á gjárbarminum standa og halda blaðamannafundi að ekki komi til greina að leyfa alþjóðastofnunum eða Evrópusambandinu að draga þjóðina upp úr sprungunni. Þá yrðum við að undirgangast ferðareglur þessara aðila, segja ráðamenn. Enda hafa útlendingar ekki vit á íslenskum aðstæðum, svo að það er best fyrir okkur að ráða þessu sjálf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun