Sárt tap hjá Veigari og félögum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. nóvember 2008 14:05 Veigar Páll Gunnarsson í leik með Stabæk. Mynd/Scanpix
Stabæk tapaði í dag fyrir Vålerenga, 4-1, í úrslitum norsku bikarkeppninnar. Þar með missti Stabæk af tækifæri til að vinna bæði deildina og bikarinn. Veigar Páll Gunnarsson lék fyrstu 85 mínúturnar í liði Stabæk en hann meiddist á æfingu á fimmtudaginn. Hann náðí hins vegar að hrista af sér meiðslin í dag. Pálmi Rafn Pálmason kom inn á sem varamaður fyrir Veigar Pál. Stabæk byrjaði betur í leiknum í dag og leikmenn liðsins fengu nokkur tækifæri til að skora. Það var hins vegar Vålerenga sem varð fyrst til að skora en þar var Mohammed Abdellaoue að verki. Stabæk reyndi áfram að sækja en ekkert gekk. Það var svo í upphafi síðari leiksins að Vålerenga gerði út um leikinn með tveimur mörkum á fjórum mínútum. Daniel Holm og Abdellaoue voru þar að verki. Stabæk náði svo að klóra í bakkann á 70. mínútu og lagði Veigar Páll upp það mark fyrir Johan Andersen. En aðeins mínútu síðar skoraði Holm sitt annað mark í leiknum og innsiglaði þar með sigur Vålerenga. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir leikmenn Stabæk og ekki síst Veigar Pál sem var tíðrætt um það í aðdraganda leiksins að hann hefði mikinn hug á að vinna bikarinn. Stabæk varð í haust Noregsmeistari í knattspyrnu en Vålerenga varð í tíunda sæti deildarinnar, 24 stigum á eftir Stabæk.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Fleiri fréttir Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Sjá meira