„Höfum talað digurbarkalega um það“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. september 2026 19:15 Arnar var léttur í viðtali dagsins, þó hann sé alvarlegur á myndinni. Vísir / Getty Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er spenntur að sjá sína menn er þeir mæta Eistlandi á Laugardalsvelli í Þjóðadeild karla í fótbolta.
Ísland er að spila fyrsta keppnisleikinn frá því á síðasta ári og jafnframt fyrsta leikinn á heimavelli síðan í fyrra einnig. Biðin hefur verið löng fyrir Arnar. Klippa: Hausverkur að velja liðið, krafa á sigur og álagi dreift „Ég er búinn að bíða frekar lengi. Það er alveg langt síðan það var alvöru keppnisleikur. Langt síðan við spiluðum á heimavelli líka. Við erum búnir að flakka töluvert um allan heim síðustu mánuði þannig að það er bara mjög jákvætt að vera komnir aftur á okkar glæsilega heimavöll,“ segir Arnar en Ísland hefur spilað leiki í Kanada, Bandaríkjunum og Japan á þessu ári. Ábyrgð án hroka Eistland er fyrsta verkefni Íslands í Þjóðadeildinni sem er sá fyrsti sem Ísland spilar í C-deild keppninnar. Eistland er neðst á heimslista FIFA af liðunum fjórum í riðlinum en Ísland efst. Krafan er því skýr fyrir leik morgundagsins. „Já, það er það. Við getum ekkert falið okkur bak við þá staðreynd að við erum í efsta styrkleikaflokki. Við eigum að taka því með mikilli ábyrgð, án þess að vera of hrokafullir og sýna fram á góða frammistöðu, sýna fram á hvað við erum búnir að læra á þessu ári og síðasta ári. Spilandi á móti sterkum liðum og gera vel í langa kafla í þeim leikjum sem mun vonandi skila sér í góðri frammistöðu á laugardaginn og svo í næstu leiki í þessum riðli,“ segir Arnar. Þetta er breiður leikmannahópur. Það er erfitt að velja þetta lið. Eigum við von á einhverju óvæntu á morgun? „Já, það má alveg mögulega koma eitthvað sem kemur kannski á óvart. En miðað við hvernig við erum búnir að tala undanfarið að þá kannski kemur það ekki beint á óvart. En svo erum við líka kannski að nálgast heimaleik og útileik á aðeins mismunandi hátt. „Ég nefndi á fundinum áðan að við erum töluvert ofar en Eistland. Þannig að það fylgir okkur viss ábyrgð svolítið að taka leikinn til þeirra. Það fylgir okkur ábyrgð að taka smá áhættu til þess að negla sér þrjú stig en jafnframt að hafa það í huga að við þurfum líka að spila sterka vörn,“ segir Arnar. Mikilvægt að dreifa álaginu Þetta er fyrsti leikur af fjórum á ellefu dögum þar sem eru flug milli landa fyrir hvern einasta leik. Hefurðu einhverjar áhyggjur af því eða þarf kannski bara að dreifa álagi þeim mun meira? „Ég held það. Ég og við erum að renna blint í sjóinn og strákarnir líka. Ég meina, Þjóðverjarnir fóru þá leið að velja 44 leikmenn, hversu gáfulegt sem það er, en þetta er bara, þetta verða kannski bara trial and errors,“ „Þú munt kannski gera einhver mistök hingað og þangað og þá þarf að læra. En þú hefur ekkert efni á að gera mörg mistök og ég á eftir að sjá það að einhverjir leikmenn séu að fara að byrja og spila fjóra 90 mínútna leiki. Ég held að það sé ekki alveg að fara að gerast,“ „Þannig að við höfum verið að vinna að því markvisst núna að stækka hópinn okkar og höfum talað alveg digurbarkalega um það. Þannig að nú er þá kominn tími til að sýna það að við getum nýtt okkar stóra og sterka hóp í þessari deild,“ segir Arnar að lokum. Fleira kemur fram í viðtalinu við Arnar sem má sjá í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Sjá meira