Matur

Hægsteikt heiðagæsabringa með bláberjum

Eldunartími: 1 klst

Hægsteikt heiðagæsabringa með bláberjum

Leiðbeiningar

Sósa:

Höggvið beinin smátt og brúnið á pönnu í olíu uns dökkbrún. Setjið yfir til suðu í köldu vatninu. Skerið lauk, gulrót, sellerí og blaðlauk smátt og brúnið á pönnunni í olíu, kryddið með salti og pipar og bætið í pottinn.

Bætið einiberjum, lárviðarlaufi, negulnöglum, piparkornum og timiani í pottinn og látið suðuna koma upp.

Fleytið af froðu og látið sjóða í 2 tíma. Sigtið soðið í annan pott og látið sjóða niður uns ½ l er eftir, bætið rjómanum í og bragðbætið þá soðið með kjötkrafti, salti og pipar. Þykkið með sósujafnara og bætið í bláberjasultu.

Endið á að taka sósuna af hitanum og þeyta köldu smjörinu í smá bitum út í og að endingu er bláberjunum bætt í sósuna en hún ekki látin sjóða eftir það.

Matreiðsla:

Hitið olíu á pönnu og brúnið bringurnar við meðalhita uns fallega brúnaðar, kryddið með salti og pipar og steikið við 100 c í 30-40 mínútur eftir stærð, takið úr ofninum og látið standa í nokkrar mínútur undir stykki til að láta safann setjast áður en kjötið er skorið.

Framreiðsla:

Gott er að bera fram smjörsteiktar soðnar kartöflur og soðnar sykurbaunir, gulrætur og smámais með gæsabringunum.

4 stk heiðagæsabringur 4 reyttar og sviðnar heiðagæsabringur og bein og læri af gæsunum
olía til steikingar
salt
pipar
1 stk laukur
1 stk gulrót
2 stk sellerístilklar
0.3 stk blaðlaukur
2 stk lárviðarlauf
4 stk einiber
2 stk negulnaglar
6 stk Svört piparkorn
0.5 tsk. timjan
1 l vatn
4 msk bláberjasulta
1.5 dl. rjómi
100 g fersk bláber
sósujafnari
40 g smjör kalt

Uppskrift af Nóatún.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.