Flaga fellur eftir háflug 1. febrúar 2008 17:04 Unnið að smíði svefnrannsóknartækis innan veggja Flögu. Mynd/E.Ól.
Gengi Flögu féll um 3,2 prósent eftir ofsaflug í vikunni. Gengi bréfa í svefnrannsóknarfyrirtækinuhafði legið í lægstu lægðum alla síðustu viku en tók skyndilegan kipp undir vikulokin og rauk upp um rúm 160 prósent á fjórum viðskiptadögum. Venjulega eru afar fá, ef engin, viðskipti með bréf í félaginu og þarf því lítið til að hreyfa við gengi þess hvort sem er upp eða niður. Þetta er mesta lækkun á skráðu félagi í Kauphöllinni í dag. Flaga hefur eftir sem áður hækkað langmest félaga sem skráð eru í Kauphöllina frá áramótum, eða um rúm 42 prósent. Hin félögin eru Century Aluminum, sem hefur hækkað um tæp fjögur prósent, og Nýherji, en gengi þess hefur hækkað um tæp 2,6 prósent frá áramótum. Önnur félög hafa ýmist staðið í stað eða lækkað. Mesta lækkunin er á gengi bréfa í Icelandic Group en þau hafa fallið um tæp 34 prósent. Fast á hæla þess eru FL Group og Exista. Century Aluminum er hástökkvari dagsins en gengi bréfa í félaginu hækkaði um rúm sex prósent í dag. Af félögum í Úrvalsvísitölunni hækkaði Exista mest, eða um rúm 4,4 prósent. Næstmesta hækkunin var hjá SPRON, sem fór upp um 1,63 prósent. Kaupþing lækkaði hins vegar mest af félögum í Úrvalsvísitölunni, eða um 1,15 prósent. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,32 prósent og stendur vísitalan í 5.464 stigum. Hún hefur fallið um rúm 13,5 prósent frá áramótum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira