Aguilar með tveggja högga forystu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2008 17:51 Felipe Aguilar frá Chile lék einkar vel í Jakarta í dag. Nordic Photos / Getty Images
Felipe Aguilar frá Chile hefur tveggja högga forystu á opna indónesíska meistaramótinu í golfi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Aguilar lék frábærlega í dag, á 62 höggum eða átta undir pari vallarins. Hann fékk einfaldlega átta fugla og tíu pör en hann hefur ekki fengið skolla síðan á fyrstu holuni á fyrsta keppnisdeginum. Suður-Afríkumaðurinn James Kamte og Prom Meesawat frá Tælandi koma næstir en sá fyrrnefndi hafði forystuna eftir gærdaginn. Þá lék hann á 62 höggum en kláraði á 67 höggum í dag. Meesawat lék á 63 höggum í dag. Norður-Írinn Darren Clarke er í 20.-28. sæti á mótinu en hann lék á 67 höggum í dag, einu betra en í gær. Hann gerði sér reyndar lítið fyrir í dag og náði holu í höggi á fjórðu holu, sem er 128 metra löng par þrjú hola. Birgir Leifur Hafþórsson er ekki meðal keppenda á mótinu.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira