Fall á öllum hlutabréfamörkuðum 17. mars 2008 09:21 Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings. Mynd/Vilhelm
Hlutabréfavísitölur um allan heim hafa tekið dýfu það sem af er degi eftir að bandaríski fjárfestingarbankinn JP Morgan tilkynnti að hann myndi kaupa kollega sinn Bear Stearns fyrir 236 milljónir dala, jafnvirði sautján milljarða íslenskra króna. Það er 93 prósenta lækkun á gengi bankans frá síðasta mánuði. NZSE-hlutabréfavísitalan í kauphöllinni á Nýja-Sjálandi, en það er fyrsti hlutabréfamarkaðurinn sem opnar á nýjum degi, sló taktinn þegar hún féll við upphaf dags og endaði í 2,0 prósenta mínus. Aðrar hlutabréfavísitölur í Asíu fylgdu í kjölfarið en Nikkei-vísitalan í Japan féll um 3,7 prósent og Hang Seng-vísitalan í kauphöllinni í Hong Kong féll um 5,2 prósent. Talsverð lækkun hefur að sama skapi verið í Evrópu í dag. FTSE-vísitalan í Bretlandi hefur fallið um 2,6 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi um 3,7 prósent og hin franska Cac-40 hefur fallið um 2,9 prósent. Svipuð lækkun er sömuleiðis á norrænum hlutabréfamörkuðum en samnorræna hlutabréfavísitalan OMX40 hefur fallið um rúm 3,2 prósent. Mesta fallið er í Svíþjóð og Finnlandi en vísitölur þar hafa fallið um rúm þrjú prósent. Gengi bréfa í Kaupþingi, sem skráð eru í kauphöllina í Svíþjóð, hefur það sem af er degi fallið um 4,5 prósent. Þá hafa gengi bréfa í finnska tryggingafélaginu Sampo, sem Exista á tæpan fimmtung í, fallið um 3,4 prósent.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira