Skyri slett á fleiri kosningaskrifstofur 20. apríl 2009 15:27
Fjórir grímuklæddir piltar slettu skyri með grænni málningu á kosningaskrifstofur Framsóknarflokksins í Kópavogi og Sjálfstæðisflokksins í Ármúla í dag. Fyrr í dag var ráðist inn á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði og mjólkurafurðum slett yfir auglýsingaefni og húsbúnað. Þetta var rétt eftir klukkan ellefu. Í hádeginu var grænleitum vökva skvett úr fötum á rúður og kosningaskilti á kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins við Digranesveg í Kópavogi. Þorsteinn Húnbogason sem var á staðnum telur að um græna málningu blandaða í vatn og skyr hafi verið að ræða. „Þeir höfðu nú alveg getað komist inn en þeir hafa jafnvel ekki fattað að láta rennihurðina opnast," sagði Þorsteinn kíminn í samtali við fréttastofu. Þingmennirnir Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir voru meðal þeirra sem tóku þátt að þrífa kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar eftir heimsókn piltanna í morgun. Þorsteinn veit ekki hvað piltunum gekk til þar sem þeir sögðu ekki neitt og forðuðu sér þess í stað á hlaupum. Búið er að þrífa húsnæðið. Þá var grænu blöndunni slett á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins við Ármúla eftir klukkan eitt í dag. Þar komust fjórmenningarnir inn og var afar sóðalegt um að litast á skrifstofunni, að sögn fréttamanns fréttastofu.
Kosningar 2009 Tengdar fréttir Slettu skyri á kosningaskrifstofu Fjórir grímuklæddir piltar réðust inn á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði á tólfta tímanum í dag og slettu mjólkurafurðum yfir auglýsingaefni og húsbúnað. 20. apríl 2009 11:28 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Sjá meira
Slettu skyri á kosningaskrifstofu Fjórir grímuklæddir piltar réðust inn á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði á tólfta tímanum í dag og slettu mjólkurafurðum yfir auglýsingaefni og húsbúnað. 20. apríl 2009 11:28