Athvarf 6. nóvember 2009 00:01 Heima hjá mér er herbergi með drasli. Það er pínulítið, innan við sex fermetrar, frekar hátt til lofts en þröngt til veggja og hefur örugglega í upphafi átt að vera búr enda við hliðina á eldhúsinu. Herbergið er lítið að utan en miklu stærra að innan, eins og slíkra vistarvera er siður. Þegar við keyptum íbúðina okkar fyrir fjórum árum var þessu herbergi ætlað mikið hlutverk. Það átti að verða skrifstofa sem síðan breyttist ef til vill í barnaherbergi. Fyrsta hlutverk þess átti samt að vera athvarf fyrir húsbóndann. Það vill gerast þegar fólk flytur saman að annar aðilinn á meira dót. Í blönduðu kynjasambandi er það oftast konan. Hún byrjaði kannski að safna sér í búið um fermingu og hver hlutur var valinn af kostgæfni í samhengi við annan. Dótið hans er hins vegar oft sitt úr hverri áttinni, stóllinn hennar langömmu, lampinn sem síðustu leigjendur skildu eftir, stórar og veglegar afrískar styttur sem passa einhvern veginn ekki inn í sænsku sveitalínuna sem hún hefur verið að draga árum saman. Þá er athvarf góð lausn. Herbergi þar sem má hengja upp gömlu Iron Maiden og Hómer Simpson plakötin, hafa hnattlíkanið og spliffið, donkið og gengjuna sem gárungarnir gáfu honum einhvern tíma í jólagjöf. Að ógleymdum metraháum afrískum stríðsmönnum. Þar ætti líka að vera tölva til að spila Football Manager, vínylplötuspilari með stórum heyrnartólum og bækurnar um seinni heimsstyrjöldina. Sumum finnst eins herbergis athvarf ekki nóg og koma sér upp heilsársathvörfum úti á landi. Þá bætast í safnið veiðistangir og vöðlur, golfsett, snjósleðar og uppstoppuð bráð, billjardborð og gufubað. Og ef bústaðurinn verður of lítill þarf bara að rífa hann og byggja stærri. Sem þú gerir náttúrlega ekki við lítið herbergi. Eins og áður sagði endaði athvarfið heima hjá mér sem geymsla, full af drasli. Smám saman tíndist meira og meira dót þar inn sem enginn vissi almennilega hvar ætti annars staðar að vera og áður en varði var ekki lengur hægt að setjast þar niður, hvað þá lesa bók eða hlusta á plötur. Sem betur fer gátum við samt ekki rifið athvarfið okkar og stækkað það. Það er nefnilega miklu erfiðara að taka til eftir svoleiðis framkvæmdir. Sérstaklega þegar þyrlunnar nýtur ekki lengur við. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson Skoðun
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun