Skipta átti Kaupþingi í Lúxemborg í tvö félög 17. mars 2009 13:38
Samkvæmt þeirri áætlun sem lá fyrir um framtíð Kaupþings í Lúxemborg var ætlunin að skipta bankanum upp í tvö félög undir nöfnunum New Bank og Securitization Company. Í frétt um málið á Reuters segir að New Bank átti að verða viðskiptabanki sem hefði haldið starfsfólki Kaupþings áfram ásamt 350 milljónum evra eða rúmlega 50 milljörðum kr. í lausafé. Securitization Company aftur á móti átti að halda utan um einkabankastarfsemina og fyrirtækjalán Kaupþings ásamt kröfum bankans. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum fyrr í dag hafnaði meirihluti þeirra banka sem eiga kröfur á hendur Kaupþingi í Lúxemborg þessari áætlun. Fjármálaráðherra Lúxemborgar, Luc Frieden hefur farið fram á það við þessa banka og fjárfestingarsjóð þann sem ætlaði að kaupa starfsemi Kaupþings að þeir endurskoði afstöðu sína. Hann vill að sjóðurinn leggi fleiri spil á borðið ef það mætti verða til þess að bankarnir létu af andstöðu sinni við áætlunina. Fram kom hjá ráðherranum að stjórnvöld í Lúxemborg myndu ekki leggja meira í púkkið en þau hefðu þegar gert. Frieden segir að enn sé of snemmt að segja til um bætur til handa innistæðueigendum í Kaupþingi en þeirra á meðal eru nokkur þúsund Belgar. „Ég hef ekki svarið við þessu í augnablikinu," segir Frieden. „Við erum núna að einbeita okkur að því að finna lausn svo bankinn geti starfað áfram. Ef bankinn starfar munu allir fá sitt fé að fullu greitt." Endurskipulagningu Kaupþings í Lúxemborg verður að vera lokið fyrir 8. apríl ef forða á bankanum frá gjaldþroti.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira