Snæfell vann Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. febrúar 2009 20:58 Sigurður Þorvaldsson og félagar í Snæfelli unnu góðan sigur á Keflavík í kvöld. Mynd/Stefán
Snæfellingar gerðu sér lítið fyrir og unnu sigur á Íslandsmeisturum Keflavíkur í Iceland Express deild karla í kvöld. Þá vann Stjarnan stóran sigur á Skallagrími í hinum leik kvöldsins, 102-74, í Borgarnesi. Snæfell vann átta stiga sigur á Keflvíkingum, 81-73, á útivelli í þokkabót. Keflvíkingar voru með yfirhöndina lengst af og náðu strax ellefu stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 26-15. Snæfellingar náðu að minnka muninn í sjö stig í hálfleik er staðan var 40-33. Keflvíkingar höfðu enn yfirhöndina þegar fjórði leikhluti hófst en þá tóku Snæfellingar til sinna ráða og skoruðu 29 stig gegn átján og unnu sem fyrr segir átta stiga sigur. Lucious Wagner var stigahæstur með átján stig auk þess sem hann tók tíu fráköst. Sigurður Þorvaldsson og S Subasic skoruðu fjórtán stig hvor og þeir Hlynur Bæringsson og Jón Ólafur Jónsson tólf hvor. Hlynur tók þrettán fráköst þar að auki. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði sautján stig fyrir Keflavík, Jón Nordal Hafsteinsson sextán auk þess sem hann tók fimmtán fráköst og Sigurður Þorsteinsson fjórtán. Snæfellingar jöfnuðu þar með Keflvíkinga að stigum og fóru þar að auki upp í þriðja sæti deildarinnar á kostnað Keflavíkur. Bæði lið eru með 20 stig. Fjögur lið eru nú með fjórtán stig eftir sigur Stjörnunnar í kvöld. Auk hennar eru það Njarðvík, Breiðablik og Tindastóll. Justin Shouse skoraði 24 stig fyrir Stjörnuna og Kjartan Atli Kjartansson sextán. Jovan Zdravevski skoraði sextán. Hjá Skallagrími var Landon Quick stigahæstur með nítján stig og Igor Beljanski skoraði sautján. Sveinn Davíðsson skoraði sextán.
Dominos-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira