Bankastjórnin eyland í Seðlabankanum 29. janúar 2009 14:33 Bankastjórn Seðlabankans, sem var ein um að vilja lækkun stýrivaxta í dag. Mynd/GVA
Bankastjórn Seðlabankans var ein um að vilja lækkun stýrivaxta. Hagfræðingar bankans voru hins vegar sammála mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að halda þeim óbreyttum í átján prósentum. Þetta fullyrðir Beat Siegenthaler, sérfræðingur hjá TD Securities í London í Bretlandi, í daglegu fréttabréfi. Siegenthaler vísar til þess að rök bankastjórnarinnar fyrir lækkun vaxta gangi ekki upp sé miðað aðra þætti sem fram komi í Peningamálum. Verðbólga er rúm átján prósent líkt og stýrivextirnir og því séu raunvextir nálægt núlli. Séu vextir hins vegar lækkaðir verði raunvaxtastigið neikvætt. Siegenthaler tæpir á stjórnarskiptunum hér og myndun hugsanlegrar ríkisstjórnar um næstu helgi. Lýst hafi verið yfir vilja til að ganga eftir áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins auk þess sem útlit sé fyrir að skipt verði um seðlabankastjórn, jafnvel verði leitað út fyrir landssteina eftir nýjum bankastjóra. Slíkt sé jákvætt enda muni sjálfstæði bankans aukast við það. Þá telur hann ólíklegt að stýrivextir verði lækkaðir fyrir 19. mars næstkomandi, að því undanskildu að gjaldeyrishöftin verði afnumi og krónan látin fljóta í millitíðinni.
Fréttir Innlent Viðskipti Tengdar fréttir Seðlabankinn vildi lækka stýrivexti Bankastjórn Seðlabankans vildi lækka stýrivexti í dag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvatti hins vegar til að vöxtum yrði haldið óbreyttum í 18 prósentum að sinni vegna tímabundinnar óvissu í íslenskum stjórnmálum. 29. janúar 2009 11:03 Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira
Seðlabankinn vildi lækka stýrivexti Bankastjórn Seðlabankans vildi lækka stýrivexti í dag. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvatti hins vegar til að vöxtum yrði haldið óbreyttum í 18 prósentum að sinni vegna tímabundinnar óvissu í íslenskum stjórnmálum. 29. janúar 2009 11:03