Feitur fíkill 28. nóvember 2009 00:01 Ég hef alltaf átt erfitt með að verða háður hlutum. Ég reyki ekki og þó að mér finnist gott að fá mér í glas dettur mér ekki í hug að teygja skemmtunina yfir á virka daga. Ég er allt of latur til að verða háður og hef ekki stöðugleikann sem þarf til að gera sama hlutinn daglega. Eða svo hélt ég. Fyrir nokkrum mánuðum skipti ég um netþjónustu heima, og vegna mistaka varð biðin eftir nýju þjónustunni rúm vika. Á sama tíma var verið að flytja skrifstofu vinnustaðar míns, þannig að fyrir einskæra tilviljun var ég algjörlega netlaus – fyrir utan agnarsmáa 3G-tengingu farsímans. Í fyrstu taldi ég að þetta yrði lítið mál. Ég hélt að ég væri ekkert svo háður netinu og gæti vel komist af án þess að skoða sömu fréttasíðurnar oft á dag. Ég hafði óafvitandi lokað augunum fyrir netfíkn á mjög alvarlegu stigi og ég vissi ekki að næstu dagar yrðu gríðarlega erfiðir. Fyrstu nóttina fór ég að finna fyrir sterkum áhrifum netleysisins. Ég átti erfitt með svefn og hrökk ítrekað upp, sveittur og örvilnaður, í örvæntingarfullri leit að símanum til að geta skoðað nokkra statusa á Facebook. Eftir að hafa fest svefn í allt of stutta stund kom morgunn og ég vaknaði úrvinda, úrillur, úrbeinaður af vanmætti. næstu dögum eyddi ég í helvíti. Ég flakkaði á milli kaffihúsa með fartölvuna og sótti netskammta hér og þar. Á kaffihúsunum leið mér eins og ég væri fyrir starfsfólkinu og pantaði því mat og drykki sem hefðu nægt fyrir heilu fjölskyldurnar. Alltaf þegar þjónarnir gengu framhjá bað ég um kaffi, kleinu eða bæði. Ég breyttist fljótt í það sem ég hélt að ég yrði aldrei: Feitan fíkil. Dagarnir liðu hægt og ekki batnaði svefninn. Ég var farinn að taka nethring í símanum reglulega, en hann svalaði engan veginn þörfinni. Ég skammaðist mín of mikið til að láta sjá mig á kaffihúsum, enda var tilhugsunin um aðra kleinu viðbjóðsleg. Geðheilsu minni hrakaði hratt og örvilnunin náði hápunkti þegar ég vaknaði um miðja nótt og sá draug við hliðina á rúminu. Draugurinn var reyndar vinaleg stelpa sem strauk mér blítt, en ég stirðnaði engu að síður upp af hræðslu og bað Guð um að tengingin myndi virka á ný. eftir sjö svefnlausar nætur og dagleg hádramatísk símtöl í símafyrirtækið fékk ég loksins merki á ráterinn. Mér leið eins og fíkli með fullar æðar af efnum og hef eytt síðustu mánuðum í alsælu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Óásættanleg meðferð á fjármunum félagsfólks VR – Hvar var stjórn VR? Þorsteinn Skúli Sveinsson Skoðun Donald Trump Jovana Pavlović Skoðun Hvers á Öskjuhlíðin að gjalda? Eyþór Máni Steinarsson Skoðun Fjórföldun á stuðningi við Guðrúnu Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Nýtt húsnæðiskerfi á Íslandi: Norrænar hugmyndir opna dyrnar fyrir fyrstu kaupendur! Bjarni Þór Sigurðsson Skoðun Kjarkur og kraftur til að breyta Áslaug Hulda Jónsdóttir,Eydís Arna Líndal Skoðun Það er samkeppni innan opinbera geirans um starfskrafta kennara Davíð Már Sigurðsson Skoðun Af hverju stríð? Helga Þórólfsdóttir Skoðun Hvammsvirkjun og framtíð laxfiska í Þjórsá Dr. Margaret Filardo,Elvar Örn Friðriksson Skoðun Börn í vanda Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun
Óásættanleg meðferð á fjármunum félagsfólks VR – Hvar var stjórn VR? Þorsteinn Skúli Sveinsson Skoðun
Nýtt húsnæðiskerfi á Íslandi: Norrænar hugmyndir opna dyrnar fyrir fyrstu kaupendur! Bjarni Þór Sigurðsson Skoðun
Óásættanleg meðferð á fjármunum félagsfólks VR – Hvar var stjórn VR? Þorsteinn Skúli Sveinsson Skoðun
Nýtt húsnæðiskerfi á Íslandi: Norrænar hugmyndir opna dyrnar fyrir fyrstu kaupendur! Bjarni Þór Sigurðsson Skoðun