Í kaþólskum sið hefur löngum verið hefð fyrir því að dregið sé úr kjötáti síðustu vikur fyrir jól, eins og orðið jólafasta felur í sér. Af þeim sið eimir enn eftir hér á landi og sjálfsagt þykir að neyta fisks á Þorláksmessu. Hér er tillaga að góðum saltfisk.
Þorlákur Guðmundsson, vert í Salthúsinu í Grindavík, kveðst hafa kynnst fjölbreyttri matreiðslu saltfisks á Spáni, Portúgal og Ítalíu er hann var í millilandasiglingum á yngri árum.
„Ég var vanur soðnum saltfiski að heiman en þarna sá ég hvað hægt var að gera. Þegar ég var orðinn skipskokkur fór ég að leyfa mér að prófa ýmsa hluti og fyrst voru menn hikandi að smakka en svo komust þeir á bragðið," segir hann.
Nafn veitingastaðarins og sú staðreynd að Grindavík er einn stærsti útflutningsbær saltfisks á Íslandi varð til þess að leitað var til Þorláks eftir uppskrift að saltfiskrétti. Hann hefur sér til fulltingis matreiðslumeistarann Hajie Flores Sieat frá Filippseyjum sem er flinkur að matreiða og líka meistari í skreytilist. Þeir félagar taka fram að saltfiskur megi alls ekki vera saltur þegar hann sé steiktur, því þurfi að útvatna hann vel.

Fyrir fjóra
800 g saltfiskhnakkar vel útvatnaðir
svartur pipar
ögn af hveiti
ólífuolía
brauðmylsna
hvítlaukssmjör
Skerið saltfiskinn í fjóra jafna bita og kryddið örlítið með svörtum pipar. Veltið þeim upp úr hveiti og steikið upp úr ólífuolíunni, um það bil tvær mínútur á hvorri hlið. Færið fiskinn upp á fat og setjið brauðmylsnu og hvítlaukssmjör ofan á. Setjið fatið í 170 gráðu heitan ofn í um það bil 15 mínútur.
Sellerístappa
1 kg sellerírót
750 g gulrætur
1 l rjómi
2 msk. hunang
1 msk. grænmetiskraftur
1 tsk. kjötkraftur
6 greinar ferskt timjan tekið af stilknum
svartur pipar
Skrælið sellerírót og gulrætur og skerið í litla bita. Setjið allt hráefni í pott og sjóðið þar til það er mjúkt. Færið það yfir í matvinnsluvél og hrærið vel. Þykkið það síðan örlítið með Maggi kartöflumús.
Laukblanda
2 laukar skornir í báta
12 kirsuberjatómatar skornir í fernt
16 ólífur
ólífuolía
hvítlaukssmjör
Maldonsalt
svartur pipar
Léttsteikið lauk, tómata og ólífur í hvítlaukssmjöri og ólífuolíu. Kryddið örlítið með Maldonsalti og pipar. Þá er rétturinn tilbúinn á borð.
