Matur

Villt brauðterta

Vera Einarsdóttir skrifar
Systir Þóru komst yfir uppskriftina árið 2006 og síðan hefur tertan átt sinn fasta sess í veislum fjölskyldunnar. Myndir/Anton Brink
Systir Þóru komst yfir uppskriftina árið 2006 og síðan hefur tertan átt sinn fasta sess í veislum fjölskyldunnar. Myndir/Anton Brink

Matvælafræðingurinn Þóra Dögg Jörundsdóttir, sem starfar við hugbúnaðarprófanir hjá Betware, tók þátt í kökukeppni í vinnunni á dögunum og gerði sér lítið fyrir og hreppti annað sætið.

Þrettán framlög bárust í keppnina en Þóra var sú eina sem gerði brauðtertu. Hún ákvað að reiða fram trompið á sínu heimili sem hefur verið á boðstólum í öllum veislum sem hún hefur haldið frá því árið 2006.

„Systir mín fann þessa uppskrift í fermingarblaði á sínum tíma og síðan höfum við notað hana við fjölmörg tækifæri. Hún er létt og svolítið villtari en venjulegar brauðtertur. Ég nota eingöngu heilhveitibrauð og sýrðan rjóma svo hún er líka hollari en gengur og gerist," segir Þóra.

Þóra breytir uppskriftinni eftir því sem hentar og sleppir stundum dýrum hráefnum eins og parmesan og hráskinku. Þegar hún notar hráskinkuna er það mestmegnis til skrauts en þá vefur hún henni í kringum tertuna og leggur hana í strimlum ofan á salatið.

Hátíðarsmurbrauðsterta
Þóra Dögg með brauðtertuna góðu.

Salat

6 egg harðsoðin

100 g marineraðir sólþurrkaðir tómatar

70 g kapers

1 knippi basilika, söxuð

1 knippi graslaukur eða fínt saxaður blaðlaukur

2 stk. hvítlauksgeirar, pressaðir

7 dl sýrður rjómi (4 dósir)

1/2 tsk. salt

1/4 tsk. hvítur pipar

12 sneiðar samlokubrauð (eða eins og þarf í þrjár hæðir)

Skraut

30 g parmesan, þunnt skorinn

50 g salami

50 g hráskinka

2 dl ólífur

Blandað salat

Fersk basilika, nokkur lauf

Aðferð

Skorpulausu brauði raðað í springform og salat sett á milli. Það á að duga á þrjár hæðir með salati efst. Blandað salat er síðan sett ofan á og tertan skreytt svolítið villt. Salamisneiðar skornar í tvennt og búin til kramarhús, Þeim er svo "troðið" ofan í brauðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.