Norski olíusjóðurinn hefur tapað stórfé á kaupum sínum í sumar á hlutum í sænska bankanum HQ Bank. Sænska fjármálaeftirlitið yfirtók HQ Bank í lok ágúst og síðan var bankinn seldur Carnegie bankanum.
HQ Bank kemur við sögu í íslenska bankahruninu en hann keypti starfsemi Glitnis í Svíþjóð fyrir 60 milljónir sænskra kr. í október 2008. Á þeim tíma sem kaupin áttu sér stað sagði á vef Dagens Industri að um útsöluverð væri að ræða. Haft var eftir forstjóra HQ að kaupin væru afar gott viðskiptatækifæri.
Í frétt um kaup olíusjóðsins á vefsíðunni e24.no segir að sjóðurnn hafi frá því í júní s.l. aukið hlut sinn í móðurfélagi HQ Bank um 1.000%. Um tíma varð sjóðurinn fimmti stærsti eigandi HQ Bank.
Í júni þegar olíusjóðurinn hóf kaup sín var verðmæti hluta í HQ Bank á bilinu 50 til 60 sænskar kr. Þegar fjármálaeftirlit Svíþjóðar yfirtók bankann fóru hlutirnir niður í 5 sænskar kr. á hlut.
Öystein Sjöli fjölmiðlafulltrúi olíusjóðsins segir aðspurðum um kaupin í HQ Bank að sjóðurinn greini aðeins einu sinni frá slíkum kaupum á hverju ári, þ.e. þegar ársskýsla sjóðsins kemur út.
Carnegie bankinn sem keypti HQ Bank kemur einnig við sögu i íslenska hruninu en Milestone var um tíma í eigendahópi bankans.